Samningur um landskönnun á mataræði Íslendinga
Undirritaður var í dag samstarfssamningur Lýðheilsustöðvar, Matvælastofnunar (MAST) og Rannsóknastofu í næringarfræði (RÍN) um framkvæmd Landskönnunar á mataræði Íslendinga.
Tilgangur slíkrar könnunar er að fylgjast með mataræði þjóðarinnar og kanna hollustu þess. Þannig er hægt að bregðast við ef um óheillavænlega þróun er að ræða. Einnig skapar könnunin faglega undirstöðu til að meta áhrif íblöndunar næringarefna í fæðu og til að fylgjast með neyslu fleiri efna. Þá nýtast niðurstöður við áhættumat vegna matvælaöryggis.
Síðast var gerð könnun á mataræði Íslendinga árið 2002 og hafa niðurstöður hennar nýst á margvíslegan hátt. Tímabært er að ráðast í nýja könnun og er undirritun samningsins fyrsta skrefið í framkvæmdinni. Gert er ráð fyrir að gagnasöfnun hefjist í haust og að vinnu vegna rannsóknarinnar verði lokið í árslok 2011.
Frá undirritun samningsins. Margrét Björnsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, Jón Gíslason, forstjóri MAST, og Inga Þórsdóttir, forstöðumaður RÍN.

