Beint í leiðarkerfi vefsins.
Lýðheilsustöð, og fleiri, stóðu fyrir Evrópsku ráðstefnunni Öruggt samfélag í maí sl. Nú hafa fyrirlestrar frá ráðstefnunni verið settir á vefsíðu Lýðheilsustöðvar ásamt tali allra aðalfyrirlesaranna.
Á morgun hefst á Grand hóteli alþjóðleg ráðstefna Lýðheilsustöðvar og fleiri um örugg samfélög. Á ráðstefnunni verður m.a. athöfn þar sem gengið er frá því formlega að Lýðheilsustöð sé miðstöð fyrir Örugg samfélög á Íslandi. Nýverið samþykkti Seltjarnarnesbær að starfa í anda Öruggs samfélags og er fyrsta bæjarfélagið á Íslandi sem það gerir.
Lýðheilsustöð, slysavarnaráð og áfengis- og vímuvarnaráð boða til morgunverðarfundar um slys og ofbeldi í tengslum við áfengisneyslu. Fundurinn er öllum opinn.
Skrá þarf þátttöku fyrir 10. nóvember á: www.lydheilsustod.is/skraning
Lesa meira