Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í dag hefst árleg Tannverndarvika en í henni er lögð áhersla á málefni tannheilsu. Að þessu sinni er kastljósinu beint að tannheilsu barna en eins og MUNNÍS rannsóknin sýndi þá búa börn á Íslandi við verstu tannheilsu á Norðurlöndunum. Margt þarf að gera til að snúa vörn í sókn, ekki síst að huga almennt betur að tannhirðu barnanna. Útbúið hefur verið lifandi myndefni þar sem farið er yfir það helsta sem snýr að tannburstun barna og er það aðgengilegt hér á vefsíðunni.
Lesa meira
Fyrsta vika febrúarmánaðar er árlega helguð tannvernd. Áhersla er lögð á mikilvægi góðarar tannheilsu og í ár er sérstök áhersla á tannþráðinn og daglega notkun hans undir kjörorðinu Taktu upp þráðinn. Lýðheilsustöð hefur látið gera stutt kennslumyndband um notkun á tannþræði, sem er öllum aðgengilegt á vefsíðu stöðvarinnar.