Sími : 5 800 900

Tóbaksvarnir

Bagg er bögg - Átak gegn munntóbaksnotkun - 5.8.2010

bagg_er_bgg_allir

„Bagg er bögg“ er nýtt átaksverkefni Jafningjafræðslu Hins hússins, Knattspyrnusambands Íslands og Lýðheilsustöðvar til að sporna við aukinni munntóbaksnotkun hjá ungu fólki. Andlit átaksins eru Alfreð Finnbogason landsliðsmaður í knattspyrnu og Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu ásamt Rúnari Guðbjartssyni og Sigríði Ólafsdóttur.

Lesa meira
 

Reykjalundur hlýtur viðurkenningu vegna tóbaksmeðferðar - 2.6.2010

ReyklausDagur_Reykjalundur_72_1200Á morgunverðarþingi, sem haldið var í tilefni af Degi án tóbaks 2010, var tilkynnt að Reykjalundur hefði hlotið viðurkenningu, ,,SmokeFreeAward”, í flokki heilbrigðisstarfsmanna en hana hljóta þeir sem með baráttuvilja, framsýni og hugrekki leggja sitt af mörkum í tóbaksvörnum eða tóbaksmeðferð á Íslandi.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Dagur án tóbaks – Konur og reykingar - 27.5.2010

dagur_an_tobaks_Krabbamein_150Dagur án tóbaks er haldinn 31. maí ár hvert. Sú ánægjulega þróun hefur átt sér stað að frá því mælingar á reykingum hófust hafa aldrei á sama tíma verið uppi jafnmargir Íslendingar sem hafa verið reyklausir allt sitt líf. Þessi þróun á jafnt við um karla sem konur, en ekki síst til að hvetja þær konur sem enn reykja, er þema tóbakslausa dagsins í ár: Konur og reykingar og er boðið til morgunverðarþings til að fjalla um málið í því ljósi.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Reyklaus bekkur 2009-2010
- Úrslit
- 17.5.2010

kubbur2-Reyklausbekkur

Evrópusamkeppni meðal reyklausra 7. og 8. bekkja í skólum landsins skólaárið 2009-2010 er lokið, og úrslit liggja fyrir. Bekkirnir kepptu um lokaverðlaun sem er ferð til Danmerkur fyrir bekkinn sem hlýtur fyrstu verðlaun, og iPod nano fyrir alla nemendur bekkjarins sem hreppir önnur verðlaun. Í ár tóku 290 bekkir, víðsvegar um landið, þátt í keppninni milli reyklausra bekkja. Um 100 lokaverkefni bárust og hafa þau aldrei verið fleiri.

Lesa meira
 

Vefsíða fyrir fagfólk um lífsstílsbreytingar - 24.3.2010

++LHS2-149Opnuð hefur verið vefsíðan frjáls.is sem ætluð er fagfólki, einkum á heilbrigðissviði, þar sem bent er á leiðir til að hvetja og styðja fólk til lífstílsbreytinga. Landlæknir, Geir Gunnlaugsson, opnaði síðuna formlega í dag í Heilsugæslunni í Mjódd að viðstöddu fjölmenni.

Lesa meira
 

Reyklaus 2009 - verðlaunahafi valinn - 10.2.2010

Reyksíminn og Lýðheilsustöð, í samstarfi við Evrópukeppnina European Network of Quitlines, hafa nú í valið vinningshafa í verðlaunasamkeppnina Reyklaus 2009 og er það Rún Knútsdóttir sem varð fyrir valinu.

Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica