Til hamingju Súðavík!
Lýðheilsustöð vill óska íbúum Súðavíkur innilega til hamingju með árangurinn. Þetta dæmi sýnir hvað nærsamfélagið getur skipt miklu máli, bæði í að hvetja fólk til að breyta lífstíl sínum og sem stuðningsnet eftir að ákvörðunin hefur verið tekin. Lýðheilsustöð hvetur önnur sveitafélög til að fylgja fordæmi Súðavíkur með því að efla aðstoð við að hætta að reykja fyrir íbúa sína og tryggja þá eftirfylgni og stuðning sem nauðsynleg er til að árangur til reykleysis náist.
Hamingjuóskir
Lýðheilsustöð
