Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Hættu fyrir lífið - Sjálfshjálparbæklingur með ráðleggingum til reykleysis

1.6.2006

Smellið á myndina til að skoða bæklinginn,,Dagur án tóbaks" vekur hjá mörgum löngun til að láta verða af því að hætta tóbaksnotkuninni og auglýsingar og fræðsluefni sem Lýðheilsustöð birti í tilefni af deginum er ætlað að hvetja til slíks. Nýlega kom út sjálfshjálparbæklingurinn Hættu fyrir lífið sem aðstoðað getur þá sem vilja hætta.

Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur nú þýtt og staðfært Giving up for life, breskan bækling með ráðleggingum til reykleysis, í samvinnu við Rósu Jónsdóttur hjúkrunarfræðing Reykleysismiðstöðvar Landspítala - háskólasjúkrahúss og Lýðheilsustöð. Bæklingurinn er saminn af Jennifer Percival fyrir National Health Service (NHS) í Bretlandi. Bæklingurinn er mjög vandaður og aðgengilegur í notkun. Megin áhersla bæklingsins er að veita fólki greinargóðar leiðbeiningar við að hætta að reykja. Í honum er að finna upplýsingar, ráðleggingar og gagnleg verkefni sem hjálpa þeim sem reykja að átta sig á því af hverju þeir reykja og hvernig þeir geta hætt, fyrir fullt og allt. Lögð er áhersla á að bæklingurinn taki mið af íslenskum aðstæðum og gefi góðar upplýsingar um meðferðarúrræði sem í boði eru hérlendis.

Panta Hættu fyrir lífið

Skoða bæklinginn

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica