Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

LOFT 2006 ráðstefna um tóbaksvarnir

13.9.2006

Ráðstefna um tóbaksvarnir LOFT 2006, verður haldin í fjórða sinn í Reykjanesbæ 14.-15. loft_myndseptember. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár og skiptast heilbrigðisstofnanir á að halda hana. Áhersla ráðstefnunnar að þessu sinni er óbeinar reykingar og reykingar á vinnustöðum og í vinnuumhverfi en einnig verður fjallað um reykingar út frá sjónarhóli heilsugæslu og það sem efst er á baugi varðandi reykleysismeðferð.

Efni ráðstefnunnar sem verður mjög fjölbreytt ætti að vera áhugavert fyrir alla þá sem hafa áhuga á tóbaksvörnum og er sérstaklega hugsað til að nýtast vel þeim sem vinna að tóbaksvörnum í heilsugæslu.

Á ráðstefnunni mun Jakobína H. Árnadóttir verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð kynna niðurstöður nýrrar rannsóknar þar sem skoðuð voru viðhorf foreldra þriggja ára barna til reykinga í návist barna, þekking þeirra á áhrifum óbeinna reykinga á börn og hegðunarmynstur foreldranna í tengslum við reykingar í návist barna. Meginefni fyrirlestursins er að bera saman niðurstöður sambærilegra rannsókna frá árunum 1995 og 2006.

Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar eru á heimasíðu ráðstefnunnar þar sem einnig er hægt að skrá sig:

http://www.congress.is/loft2006



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica