Myndir til aðvörunar á tóbaksvörum
Hafin er undirbúningur að því að á öllum tóbaksvörum, sem seldar eru á Íslandi, verði myndir til aðvörunar um skaðsemi tóbaks og kæmu þær þá í stað viðvaranna sem nú eru á þessum vörum. Íslendingar yrðu þá meðal fyrstu þjóða sem merktu tóbaksvörur á þennan hátt.Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að hefja undirbúning að setningu reglugerðar þar sem mælt verður fyrir um breyttar viðvaranir á tóbaksumbúðum og verður málið unnið í samstarfi við Lýðheilsustöð.
Áhrifamesta forvörnin sem hægt er að beita til að bæta heilsu íslensku þjóðarinnar, draga úr tíðni sjúkdóma og fækka dauðsföllum, er að vinna mjög vel að því að draga úr neyslu á tóbaki. Með slíku forvarnarstarfi er hægt að vinna markvisst gegn þeim áhættuþætti sem heilsu þjóðarinnar stendur mest ógn af nú á tímum.
Fjölmargar þjóðir heims hafa tekið höndum saman um að spyrna við þeim heilsufarslega og þjóðfélagslega kostnaði sem hlýst af tóbaksneyslu ár hvert. Einn liður í að ná til reykingamanna er að hafa aðvaranir um skaðsemi reykinga á hverjum pakka af tóbaki. Það, að hafa slíkar merkingar í formi mynda á pökkunum, gerir okkur kleift að ná til allra sem reykja, óháð tungumáli og lestrargetu og er því bæði hagkvæm og skilvirk aðferð til að koma upplýsingum áleiðis til reykingafólks
| Um áhrif á blóðrás | Innihald tóbaksreyks | Ávanabindandi |
|---|---|---|
![]() |
![]() |
![]() |
Einnig er vilji til þess að á umbúðirnar verði skráð símanúmer Reyksímans 800 6030 þar sem þeir sem vilja hætta að reykja geta fengið ókeypis ráðgjöf. Þessar breyttu merkingar eru í samræmi við ráðleggingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og reglur Evrópska efnahagssvæðisins og eru Íslendingar meðal fyrstu þjóða sem stefna að því að innleiða þær en miðað er við að breytingarnar geti komið til framkvæmda í upphafi næsta árs.
Á síðunni er sýnishorn af nokkrum þeirra mynda sem til greina koma sem viðvaranir á tóbaksumbúðir.
Fleiri myndir er hægt að skoða hér.



