Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Áherslan á aðstoð við að hætta að reykja

14.1.2008

Tóbaksvarnaauglýsing, Fyrirmynd. Smella á mynd til að stækka. Lýðheilsustöð hefur látið útbúa sex nýjar tóbaksvarnaauglýsingar þar sem áhersla er lögð á mikilvægi þess að fá aðstoð við að hætta notkun tóbaks. Auglýsingarnar hafa verið að birtast á sjónvarpsstöðvunum frá áramótum og í ýmsum prentmiðlum.

Skilaboð auglýsinganna eru í samræmi við það sem nú er talið, skv. reynslu á heimsvísu, virka einna best í forvarna sjónvarpsauglýsingum. Leitast er við að höfða til fólks með því að veita innsýn í reynsluheim annarra - oft svipaðum þeirra eigin - þannig að auðveldara verði að samsama sig þeim aðstæðum eða sögu sem sést á skjánum.

Tóbaksvarnaauglýsingar, Barn í vændum. Smella á mynd til að stækka.

Smella hér til að sjá lifandi auglýsingu

Tóbaksvarnaauglýsing, Barn_í_bíl. Smellið á mynd til að stækka.

Smella hér til að sjá lifandi auglýsingu

Tóbaksvarnaauglýsing, Börn og óbeinar. Smella á mynd til að stækka.

Smella hér til að sjá lifandi auglýsingu

Tóbaksvarnaauglýsing, Fyrirmynd. Smellið á mynd til að stækka.

Smella hér til að sjá lifandi auglýsingu

Tóbaksvarnaauglýsing, Tími_til_að_hætta. Smella á mynd til að stækka

Smella hér til að sjá lifandi auglýsingu

Tóbaksvarnauglýsing, Hvaða sjúkdóm má bjóða þér? Smellið á mynd til að stækka

Smella hér til að sjá lifandi auglýsingu

Tilgangurinn er að benda á góðar ástæður fyrir því að hætta að reykja og leiðir til þess að hætta. Hverri auglýsingu lýkur því ábendingu um endurgjaldslausa þjónustu sem þeim stendur til boða sem vilja hætta; þ.e. reyksímann 8006030 og vefsíðuna reyklaus.is - en hvoru tveggja eru verkefni sem Lýðheilsustöð styður.

Til að skilaboðin festist enn betur í minni, og sjáist oftar og víðar, þá voru einnig gerðar auglýsingar fyrir aðra miðla en sjónvarp, þ.e. prent- og vefmiðla, og eru það myndirnar sem sjást hér að ofan. Þar sem góð vísa er aldrei of oft kveðin þá munu þessi tóbaksvarnaskilaboð sjást reglulega á einhverjum þessara miðla næstu mánuði og ár.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica