Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Ert þú „Tóbakslausi maður/kona ársins 2008“?

18.1.2008

Taka þáttReyksíminn og Lýðheilsustöð hafa ákveðið að setja af stað verðlaunasamkeppnina „Reyklaus 2008“.
Leitað er að þeim sem eru tilbúnir að hætta að reykja, eða eru þegar hættir, og búa yfir góðri sögu sem getur verið hvatning fyrir aðra í baráttunni gegn tóbaki. Verðlaunasamkeppnin er hluti af „European Smoke Free Awards 2008“ sem Evrópuráð reyksíma stendur að. Aðalverðlaun fyrir vinningshafann á Íslandi eru ferð til Amsterdam, á evrópsku verðlaunaafhendinguna, ásamt 100.000 krónum í gjaldeyri.

                                                            Taka þátt

Ellefu lönd í Evrópu taka þátt í þessari keppni og mun hvert og eitt land senda sinn fulltrúa til Amsterdam. Af þessum ellefu verður valinn vinningshafi Evrópu (European Quitter of the Year) sem hlýtur í verðlaun ferðaávísun upp á 15.000 evrur.

Taka þátt

Þeir sem eru tilbúnir að hætta að reykja, eða eru þegar hættir, geta skráð sig með rafrænum hætti hér til 15. febrúar 2008. Eftir það þurfa þeir að vera reyklausir.
Þann 15. ágúst 2008 velur dómnefnd þær sögur sem geta veitt öðrum innblástur til að hætta að reykja. Dómnefndin velur loks fulltrúa Íslands í Evrópusamkeppnina.

Tilnefningar um baráttumann/hóp gegn tóbaki og meðferðaraðila í tóbaksmeðferð

Margir hafa unnið ötult starf í tóbaksvörnum og tóbaksmeðferð sem ekki má vanmeta. Þetta á sinn þátt í að Ísland stendur framarlega í lagasetningu og öðru sem tengist tóbaksvörnum. Fjöldi heilbrigðisstarfsmanna hefur unnið óeigingjarnt starf við tóbaksmeðferð, en það að hjálpa fólki að hætta að reykja er eitt af mikilvægustu hlutverkum heilbrigðisstarfsmanna til að bæta heilsu skjólstæðinga sinna.
Óskað er eftir tilnefningum um einstaklinga eða hópa sem hafa með baráttuvilja, framsýni eða hugrekki lagt sitt af mörkum í tóbaksvörnum eða tóbaksmeðferð þeirra sem heyja baráttu við tóbakið.

Þeir sem hljóta viðurkenningu verða tilnefndir fulltrúar Íslands í „European Smoke Free Award 2008“.

Leitað er eftir tilnefningum í tveimur flokkum.

Heilbrigðisstarfsmaður/meðferðaraðili eða hópur starfsmanna fyrir ötult starf við tóbaksmeðferð
Einnig að tilnefndur sé heilbrigðisstarfsmaður, eða hópur starfsmanna, sem hefur unnið sérstaklega að því að aðstoða fólk við að hætta að reykja.

Einstaklingur/hópur einstaklinga fyrir baráttu í tóbaksvörnum
Óskað er eftir að tilnefndur sé einstaklingur, t.d. stjórnmálamaður, fyrir sérstakt framlag í þágu tóbaksvarna á Íslandi.

Tilnefning
Hægt er að tilnefna með rafrænum hætti á www.reyklaus.is til 5. maí.
Viðurkenningar verða veittar í þessum tveimur flokkum á „Degi án tóbaks“ 31. maí 2008.

Til að fá nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við reyksímann í síma 8006030, svarað er í síma milli kl. 17 og 20 virka daga, símsvari þess á milli, eða senda tölvupóst á reyklaus@reyklaus.is .

Pfizer er styrktaraðili European Smoke Free Awards 2008.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica