Sími : 5 800 900
Hreyfing

Kominn tími til að teygja

Á vef Lýðheilsustöðvar stendur nú til boða ókeypis teygjuæfingaforrit fyrir alla þá sem eru þaulsætnir við tölvuna, þ.ám. Þuríði M. Björnsdóttur.

Kyrrseta er fylgifiskur nútímalifnaðarhátta og má segja að mörg okkar sitji heilu og hálfu dagana; í vinnunni, skólanum og líka í fríinu, börn jafnt sem fullorðnir, og er tölvan ein helsta ástæðan fyrir þaulsetu manna. Lýðheilsustöð kynnti teygjuæfingaforrit í tölvur, Teygjuhlé fyrir börn og unglinga, í Digranesskóla í Kópavogi í síðustu viku en forritið minnir fólk á að taka sér hvíld frá tölvuskjánum og gera æfingar með reglulegu millibili. Öllum stendur til boða að sækja það frítt á heimasíðu Lýðheilsustöðvar.
Gígja Gunnarsdóttir er verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð og hún segir forritið ætlað börnum og unglingum en það nýtist í raun öllum aldurshópum. "Forritið minnir mann á að taka reglulega hlé frá tölvuvinnunni og gefur manni hugmyndir að æfingum til að teygja á. Þannig minnka líkurnar á álagsmeiðslum í stoðkerfi vegna einhæfrar kyrrsetuvinnu, eins og í hálsi, herðum, baki og úlnliðum. Börn læra með þessu þá hegðun að það er nauðsynlegt að standa reglulega upp og teygja úr sér í slíkri vinnu. Eins lærir fólk æfingarnar og getur gert þær við aðra kyrrsetuvinnu, t.d. að lesa. Því er þetta tilvalið fyrir háskólanemendur sem sitja mikið yfir bókum."

Gríðarleg forvörn

Að sögn Gígju er forritið bandarískt að uppruna og er Ísland fyrsta landið sem fær það á öðru tungumáli en ensku. Lýðheilsustöð sá um þýðinguna og naut stuðnings Iðjuþjálfafélags Íslands en einn höfunda þess, Karen Jacobs, prófessor við Bostonháskóla, hefur kennt við iðjuþjálfadeild Háskólans á Akureyri og bauð stöðinni forritið. "Öllum sem hafa prófað það líst ofsalega vel á og í burðarliðnum er að kynna það í öllum skólum og víðar." Og menn fagna greinilega þessari nýjung: "Yfir 200 manns sóttu forritið daginn sem það var sett inn á Netið og er það metfjöldi samkvæmt upplýsingum frá bandarískum útgefendum forritsins - við Íslendingar erum auðvitað svo tölvuvæddir." Mestu skiptir að mati Gígju að börnin tileinki sér vissa vinnutilhögun. "Við viljum höfða til foreldra að sækja forritið og setja það líka í heimatölvur og fartölvur. Því miður verja krakkar drjúgum tíma í tölvunni heima og við viljum náttúrlega draga úr því en með forritinu fá þau allavega áminninguna um að teygja úr sér. Auðvitað eru miklar líkur á að stór hluti barna komi til með að stunda kyrrsetuvinnu í framtíðinni og það felst gríðarleg forvörn í að þau læri að taka sér hlé og læri æfingarnar upp á framtíðina; að eðlilegt sé að staldra reglulega við og teygja úr sér." Í lok viðtals beinir Gígja svo spjótum sínum að blaðamanninum - tölvuþrælnum - sem tekur teygjuæfingum fagnandi.

thuridur@mbl.is www.lydheilsustod.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica