Forvarnir og áfengisneysla
Verkefnið er það þriðja í röðinni undir yfirskriftinni ESPAD (The European School Project on Alcohol and Other Drugs). Niðurstöðurnar sýna að heldur hefur dregið úr reykingum og áfengisneyslu íslenskra unglinga á aldrinum 15-16 ára og ber að fanga því. Neysla á kannabis virðist standa í stað og eina skuggann sem ber á æsku landsins er að aukning virðist eiga sér stað þegar um notkun sniffefna er að ræða. En í heildina er ástæða til að óska íslenskum unglingum og fjölskyldum þeirra til hamingju með þessar niðurstöður.
Átta þúsund unglingar geta þá keypt áfengi
Þótt niðurstöðurnar séu góðar og hægt sé að líta á þær sem ákveðinn áfanga er sigur ekki unninn, mikið starf er enn óunnið og ekki má slaka á í forvörnum og fræðslu. Ákveðin umræða um tilslakanir á áfengiskaupaaldri og aðgengi að áfengi á sér stað í samfélaginu. Lögð hefur verið fram tillaga um að lækka áfengiskaupaaldurinn frá 20 í 18 ár og ennfremur er hávær umræða um að leyfa sölu áfengis í matvöruverslunum. Fyrir tillögunum hafa menn svo fært ýmis misgóð rök. Ein þeirra eru að þessi hópur ungmenna drekki hvort sem er, þannig að eins gott sé að leyfa það. Má þá ekki alveg eins leyfa 110 km hraða á þjóðvegum landsins og að fara yfir á rauðu ljósi, við gerum það hvort sem er?
Ef tillaga þessi nær fram að ganga leyfum við rúmlega átta þúsund ungmennum á aldrinum 18-20 ára að kaupa áfengi löglega. Ætla má að nú þegar geti hluti ungmenna á þessum aldri sjálfir keypt áfengi. Ef aldurinn verði lækkaður í 18 ár má gera ráð fyrir að sá hópur hliðrist um 1-2 ár. Þar af leiðandi gætu 15-17 ára unglingar keypt áfengi.
Samkvæmt niðurstöðum í ESPAD rannsókninni segjast 88% 15-16 ára eiga auðvelt með að verða sér út um bjór, 80% um vín og 71% um sterkt áfengi. 11% þeirra sem þátt tóku í könnunni höfðu sjálfir keypt áfengi 1-2 sinnum á síðustu 30 dögum þegar könnuni var gerð (sjá mynd 1). Að mínu viti yrði lækkun á áfengiskaupaaldri stórt skref aftur á bak í þeirri jákvæðu þróun sem virðist eiga sér stað hér á landi hvað varðar neyslu 15-16 ára unglinga og um leið í andstöðu við heilbrigðisáætlun rískisstjórnarinnar.
Auðveldara aðgengi að áfengi þýðir að fleiri drekka
Ef áfengi verður selt í matvöruverslunum fellur enn eitt verkfærið sem nýtist í forvarnarstarfinu. Á norrænni ráðstefnu, sem haldin var í Stokkhólmi í byrjun desember 2004, um rannsóknir á forvarnarstarfi, komu fram áhugaverðar niðurstöður sem tengjast þessari umræðu. Meðal annars má nefna að þegar leyft var að selja bjór í búðum í Finnlandi 1969, jókst sala og neysla áfengis um 46% á landsvísu. Gerð var tilraun með sjálfsafgreiðslu, eins og þekkist í verslunum hérlendis, í nokkrum tilraunasveitarfélögum í Svíþjóð. Sú tilraun leiddi til 17% sölu- og neysluaukningar í viðkomandi sveitarfélögum og alls 9% nettó aukningar á landsvísu. Frá því að Finnar lækkuðu áfengisskatta um 44% árið 2004, til að sporna við verslun yfir landamærin, hefur orðið 40% auking á sölu áfengis, 100% aukning á einkainnflutningi áfengis og drykkja á sterku áfengi hefur stigið um 15%. Á árinu var einnig gerð könnun á því hvort unglingar, sem ekki höfðu aldur til, gætu keypt áfengi í verslunum í Finnlandi. Um var að ræða matvörubúðir, bensínstöðvar og sjoppur. Niðurstöðurnar voru eftirfarandi: 46,6% þeirra gátu keypt áfengi, 53,4% ekki. 43,8% stúlkna og 49,3% drengja fengu afgreitt áfengi. Af þessu má sjá að ef aðgengi að áfengi verður auðveldað má gera ráð fyrir aukinni neyslu þess. Þá sýndu niðurstöður að hækkun áfengiskaupaaldurs minnkar neyslu áfengis og að lækkun aldursins eykur neyslu áfengis. Ítrekað var mikilvægi staðbundinna forvarna og er samvinna sveitastjórnenda og annarra hagsmunaaðila mikilvæg svo hægt sé að byggja upp og viðhalda góðum forvörnum.
Samþykkjum ekki unglingadrykkju
Gerum ekki afdrifarík mistök í þessum málaflokki án þess að skoða hvaða afleiðingar það getur haft í för með sér. Samþykkjum ekki unglingadrykkju með því að auðvelda þeim aðgengi að áfengi, höldum uppi öflugum forvörnum áfram m.a. með því halda því söluformi sem nú er og með þeim aldurstakmörkunum sem nú gilda. Eyðileggjum ekki það starf og þann árangur sem nú virðist vera að skila sér í þeim niðurstöðum sem fyrr er getið.
|
Bjór 1-2 sinnum |
Vín 1-2 sinnum |
Sterkt áfengi 1-2sinnum |
|
11% |
2% |
7% |
Mynd 1, Sjálf keypt áfengi á síðustu 30 dögum
Rafn M Jónsson,
Verkefnastjóri áfengis- og vímuvarna,
Lýðheilsustöð
