Hjólreiðahjálmar og annar öryggisbúnaður
Yfirlit
Hjólreiðahjálmur
Hvað þarf að hafa í huga þegar hjólreiðahjálmur er valinn?
-
Samkvæmt reglugerð um persónuhlífar (nr. 635/1999) eiga allir hjólreiðahjálmar
að vera
merktir. -
Skriflegar leiðbeiningar á íslensku eiga að fylgja öllum hjálmum sem seldir eru hérlendis, þ.m.t. hjólreiðahjálmum.
-
Þegar keyptur er hjólreiðahjálmur er mikilvægt að hafa barnið með í verslunina til að hægt sé að máta hann á höfuð þess áður en hann er keyptur
-
Hjólreiðahjálmar eru til í ýmsum stærðum. Stærð hjálmsins er að finna á límmiða inni í honum og utan á umbúðunum. Mikilvægt er að mæla höfuðummál barnsins til að finna hvaða stærð hentar barninu, þ.e. rétt fyrir ofan augabrúnir og yfir breiðasta hluta höfuðs. Ummál höfuðsins á að vera innan þeirra talna sem gefnar eru upp í stærðinni t.d. ef höfuðummálið er 51 cm þá hentar stærðin lítill 49-55 cm (small 49-55 cm).
Hvernig á að stilla hjólreiðahjálminn rétt?
Ef hjólreiðahjálmurinn er ekki af réttri stærð eða er vanstilltur veitir hann enga vörn. Bandarískar rannsóknir hafa sýnt að lítill munur er á áverkum hjólreiðamanna sem lenda í slysi með of stóran eða vanstilltan hjálm og þeirra sem nota engan hjálm. Ekki er hægt að stilla hjólreiðahjálm rétt á höfuð barns ef hann er ekki af réttri stærð.
1. Kynnið ykkur vel leiðbeiningarnar sem fylgja hjólreiðahjálminum áður en hann er stilltur fyrir barnið.
2. Hverjum hjólreiðahjálmi fylgja tvær til þrjár þykktir af svömpum. Mjög mikilvægt er að velja þá svampaþykkt sem fær hjólreiðahjálminn til að sitja þétt og vel á höfði barnsins. Einnig verður að gæta að því að svamparnir séu rétt festir á þar til gerða staði. Til að vera viss um að rétt þykkt á svampi hafi verið valin þarf að prófa að setja hjólreiðahjálminn á barnið áður en böndin eru stillt. Hann verður að sitja þétt á höfðinu og á ekki að hreyfast meira en nokkra millimetra ef hann er hreyfður til á höfðinu. Ef þvinga þarf hjólreiðahjálminn á höfuðið hafa of þykkir svampar verið valdir.
3. Á sumum hjólreiðahjálmum er hnakkaband sem þarf að stilla þannig að hjálmurinn sitji þétt á höfðinu. Á öðrum hjálmum er band inn í honum sem nær utan um höfuðið og þarf að stilla það hæfilega þétt.
4. Hjólreiðahjálminn á að setja beint ofan á höfuðið, þannig að hann verji enni, hnakka, gagnaugu og koll. Hann má hvorki hindra sjón né heyrn. Aftara bandið er stillt á móti fremra bandinu, þannig að eyrað lendi í miðju V-forminu sem böndin mynda.
5. Hökubandið á að stilla þannig að spennan sé til hliðar en ekki undir hökunni. Það má ekki vera lausara en svo að
einn til tveir fingur komist á milli. Ef hliðarböndin hafa ekki verið rétt stillt áður, er líklegt að erfitt verði að stilla hökubandið rétt. Til að kanna hvort hjólreiðahjálmurinn sé nú rétt stilltur er hægt að láta barnið gapa og ef það veldur barninu engum óþægindum er hann það. Ef barnið finnur til óþæginda t.d. hengingartilfinningar er hætta á að það togi í böndin og losi þannig smátt og smátt um þau þannig að hjólreiðahjálmurinn veitir ekki lengur þá vörn sem hann á að gera.
6. Eigi hjólreiðahjálmurinn að koma að gagni verður hann að sitja rétt á höfðinu. Ef reynt er að færa hann með
báðum höndum, fram og aftur og til hliðanna, á að vera hægt að færa hann um nokkra millimetra. Hann á ekki vera það þröngur að hann haggist ekkert. Sitji hjólreiðahjálmurinn ekki rétt á höfðinu er hann svo til gagnlaus og veitir einungis falska öryggiskennd. Alltof algengt er að hann sé hafður of laus og of aftarlega á höfðinu. Þannig stilltur kemur hann að litlum notum þegar á reynir.
Margoft hefur það sýnt sig að góður hjólreiðahjálmur sem er rétt notaður hefur ráðið úrslitum um líf og dauða í slysum. Vanda þarf því valið þegar hjólreiðahjálmur er keyptur og vera viss um að hann hafi staðist allar öryggisprófanir.
Af hverju á að velja græna spennu fyrir börn yngri en 6 ára?
Fallhjálmur kallast hjólreiðahjálmur sem er sérstaklega ætlaður börnum yngri en 6 ára. Hann þekkist á grænu spennunni sem er sérstök öryggisspenna sem opnast við 16 kg þunga. Stundum er hökubandið líka grænt. Ekki er óhætt að hjóla við umferðargötu með þennan hjálm heldur má barnið eingöngu hjóla með hann á leiksvæðum sem eru fjarri bílaumferð. Börn gleyma sér auðveldlega í leik og eiga það til að fara af hjólinu og í leiktæki án þess að taka hjólreiðahjálminn af sér. Ef barn með hefðbundinn hjólreiðahjálm festir höfuðið einhversstaðar á milli opnast spennan við 50 kg þunga en ef barnið er með fallhjálm opnast græna spennan við 16 kg þunga. Til að græna spennan virki sem skyldi má hún ekki vera undir hökunni heldur til hliðar. Græna spennan opnast við fyrsta högg sem hjálmurinn verður fyrir og verndar því ekki höfuð barns sem lendir í umferðarslysi. Leyfið börnum ekki að leika sér í leiktækjum með hjólreiðahjálm á höfðinu.
Nokkur atriði um hvernig hægt er að auðvelda foreldrum að fá börn sín til að nota hjólreiðahjálm:
-
Mikilvægt er að byrja snemma að venja barnið á að nota hjálm td. um leið og barnið fer að nota þríhjól.
-
Leyfið barninu að koma með þegar hjálmurinn er keyptur. Þannig getur það valið hjálm sem það langar í.
-
Mikilvægt er að máta hjólreiðahjálminn í versluninni áður en að hann er keyptur og að kaupa hjálm sem auðvelt er að stilla rétt og situr þægilega á höfði barnsins. Hjálmur sem ekki er rétt stilltur og passar illa á barnið er ekki jafn öruggur.
-
Útskýrið fyrir barninu hvers vegna svo mikilvægt er að nota hjálm við hjólreiðar.
-
Hrósið barninu fyrir að nota hjálminn rétt.
-
Verið ákveðin, ekki gefa barninu það eftir að nota ekki hjálminn.
-
Verið góð fyrirmynd og notið alltaf hjálm þegar þið hjólið eða eruð á línuskautum.
Einnig er mikilvægt að brýna fyrir börnum að nota olnboga-, úlnliðs- og hnéhlífar með hjálminum þegar þau eru á línuskautum, skautum, hjólabrettum og hlaupahjólum.
Eftirfarandi atriði ber að hafa í huga varðandi hjólreiðahjálma:
-
Á hjólreiðahjálminn má ekki setja auka límmiða, þar sem það getur haft áhrif á höggþol hans.
-
Tússlitir innihalda leysiefni sem geta eyðilagt plastið í hjólreiðahjálminum og því skal ekki krota á hann.
-
Hjólreiðahjálmur er viðkvæmur öryggisbúnaður og þolir illa mikið högg, t.d. við það að lenda á hörðum fleti. Brýnið því fyrir barninu að hugsa vel um hjálminn sinn. Hjólreiðahjálmur sem hefur orðið fyrir miklu höggi er ónýtur.
-
Fara þarf reglulega yfir stillingar á hjólreiðahjálminum, hvort stærð hjálmsins henti enn barninu og hvort skipta þurfi um svampa inni í honum.
-
Framleiðendur ábyrgjast hjólreiðahjálminn ekki lengur en í fimm ár þar sem plastið í honum brotnar smám saman niður vegna sólarljóssins. Endingartíminn fer þó algjörlega eftir því hvernig hugsað hefur verið um hann. Reikna má með því að hjólreiðahjálmar yngri barna sem verða fyrir meira hnjaski en annarra endist skemur, jafnvel einungis í 1-2 ár.
-
Ekki má nota húfu eða eyrnaband undir hjólreiðahjálminum, þar sem hjálmurinn situr þá ekki nógu þétt á höfðinu. Þegar kalt er í veðri skal nota þunna lambhúshettu eða þar til gerðar eyrnahlífar.
Annar öryggisbúnaður
Allar öryggishlífar sem keyptar eru til að nota á reiðhjóli, línuskautum, hlaupahjóli eða hjólabretti eiga að vera
merktar.
Ef kaupendur telja að hjólreiðahjálmurinn og annar öryggisbúnaður uppfylli ekki lágmarks kröfur eru þeir hvattir til að hafa samband við markaðsgæsludeild Löggildingarstofu í síma 510 1100 eða á ls@ls.is.
Þakkir til Slysavarnafélagsins Landsbjargar fyrir að lána myndir.
