Sími : 5 800 900
Árvekni

Um upphaf og hlutverk Árvekni

Ríkisstjórn Íslands samþykkti þann 8. október 1997 tillögu Ingibjargar Pálmadóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, um þriggja ára átaksverkefni til fækkunar slysa á börnum og unglingum.

Aðdraganda þess verkefnis má rekja til samvinnu Þórhildar Líndal, umboðsmanns barna, og Herdísar L. Storgaard, barnaslysavarnafulltrúa Slysavarnafélags Íslands. Í samvinnu við lækna á barnadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur voru árið 1997 þróaðar hugmyndir umboðsmanns um sérstakt átak í slysavörnum barna og unglinga. Tillögur um slíkt átaksverkefni voru í júlí 1997 kynntar heilbrigðisráðherra. Eftir samþykkt ríkisstjórnar var verkefnisstjórn skipuð í apríl 1998 og hófst undirbúningur og skipulagning starfsins í framhaldi af því.  Verkefnisstjórn er skipuð fulltrúum sex ráðuneyta og einum fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.  Síðla árs 1998 var Herdís L. Storgaard ráðin framkvæmdastjóri verkefnisins og hóf hún störf 1. desember það ár.  Talið var rétt að finna verkefninu sérstakt nafn, m.a. til að auðvelda kynningu þess, og varð nafnið Árvekni fyrir valinu.

Verkefnisstjórn starfar samkvæmt skipunarbréfi, en þar segir m.a. að henni sé ætlað að efla og samhæfa aðgerðir þeirra sem þegar vinna að slysavörnum barna og unglinga, tryggja tengsl við ýmsar opinberar stofnanir, sveitarfélög, félagasamtök og faghópa og skilgreina á hverra ábyrgð hvers konar aðgerðir í forvörnum eru.  Í þessu skyni verður reynt að bæta skráningu barna- og unglingaslysa, skilgreina brýnustu verkefni og leiðir til úrbóta og samhæfa aðgerðir til fræðslu og forvarna.  Einnig verður veitt ráðgjöf um slysavarnir þessa aldurshóps og tekið við ábendingum um slysagildrur og tilkynningum um slys.  Til verkefnisins hefur verið veitt árlega af fjárlögum sjö milljónum króna árin 1999 til 2002.

Fyrri starfsemi Árvekni








Þetta vefsvæði byggir á Eplica