Hver er Zippý?
Zippý hjálpar börnunum að læra um ýmis tilfinningaleg vandamál og að leysa úr þeim.
SMELLTU HÉR TIL AÐ KOMAST AFTUR Á FORSÍÐU VINA ZIPPÝS
Zippý er teiknimyndapersóna, nánar tiltekið skordýr, og vinir hans er hópur af ungum börnum. Í sögunum standa þau frammi fyrir ýmsum aðstæðum sem mörg ung börn þekkja vel og snerta m.a.: vináttu, samskipti, einmannaleika, einelti, að takast á við breytingar s.s. skilnað foreldra, missi og sorg. Sögurnar eru myndskreyttar með björtum og líflegum myndum. Hverri sögu fylgja mismunandi verkefni. Með námsefninu er börnunum kennt að takast á við erfiðleika sem upp kunna að koma í daglegu lífi þeirra, að greina og tala um tilfinningar sínar og að kanna leiðir til að takast á við og leysa tilfinningaleg vandamál. Það kennir börnum ennfremur að aðstoða aðra sem líður illa. Markmiðið er því að efla andlega og tilfinningalega heilsu allra barnanna frekar en að leysa eingöngu vandamál fárra.

Zippý frá Breiðholtsskóla
SMELLTU HÉR TIL AÐ SJÁ FLEIRI MYNDIR AF ZIPPÝ OG VINUM
