Sími : 5 800 900
Manneldi

Meira af ávöxtum og grænmeti inn í skólana

Brynildur Briem, lektor við Kennaraháskóla Íslands

Ávaxta- og grænmetisneysla skólabarna er lítil samkvæmt niðurstöðum síðustu neyslukönnunnar Manneldisráðs. Könnunin, sem gerð var á árunum 1992-1993, gaf til kynna að meðalneysla barna og unglinga væri aðeins um 35 grömm á dag af grænmeti og 73 g af ávöxtum. Þetta samsvarar um einum þriðja úr gulrót og hálfri appelsínu á dag. Hér er um mun minna magn að ræða, en æskilegt getur talist.

Skóladagurinn hefur lengst á undaförnum árum og sum börn eru allt að níu tímum á dag í skólanum eða á vegum skólans. Það er því eðlilegt að stór hluti af ávaxta- og grænmetisneyslunni fari fram á þessum tíma. Því er mikilvægt að skólarnir íhugi hvernig þeir geti stuðlað að aukinni ávaxta- og grænmetisneyslu nemendanna. Þar kemur margt til greina og þarf þá bæði að huga að framboðinu og fræðslunni.

Ávextir og grænmeti í áskrift

Nágrannar okkar Danir og Norðmenn hafa tekið upp á því að gefa börnum í grunnskólum tækifæri til að kaupa ávexti og grænmeti í áskrift líkt og gert hefur verið með skólamjólkina í mörgum skólum hér á landi. Norðmenn riðu á vaðið og byrjuðu með þessa nýbreytni árið 1997. Þessu var strax vel tekið og fyrsta árið tók um þriðjungur skólanna í Osló þátt í verkefninu. Síðan hafa fleiri skólar um landið allt bæst í hópinn og stefnt er að því að allir grunnskólar í Noregi bjóði upp á áskrift á næsta skólaári. Það hefur komið í ljós að þetta er mun auðveldara og krefst minni vinnu af starfsfólki en búist hafði verið við. Sums staðar eru ávextirnir og grænmetið keyrt út um leið og skólamjólkin.

Á árinu 1999 voru 45 skólar í Osló með í verkefninu og að meðaltali voru 40% af nemendunum áskrifendur af ávöxtum og grænmeti í skólanum. Til að auka enn frekar þátttökuna voru sex skólar valdir úr og börnunum gefinir ávextir og grænmeti í fimm vikur. Það er norska manneldisráðið og upplýsingaskrifstofa fyrir ávexti og grænmeti, sem standa saman að þessu verkefni.

Nú ætla Danir einnig að fara að selja ávexti og grænmeti í áskrift í skólunum. Um miðjan september fór verkefnið af stað í einum skóla í Fredrikssund. Þar gefst börnunum kostur á að fá ávexti og grænmeti í frímínútunum kl 10, og ganga þær nú undir nafninu "ávaxta-frímínúturnar". Verkefnið er á tilraunastigi fram að jólum en síðan á að meta árangur og ákveða með framhaldið. Að tilrauninni standa matvælaráðuneytið, danska krabbameinsfélagið og aðilar sem selja ávexti og græmeti.

Hér á landi væri æskilegt að reyna að koma upp svona áskriftakerfi. Þarna gætu margir aðilar unnið saman eins og Manneldisráð, Krabbameinsfélagið, grænmetisbændur og innflytjendur á ávöxtum og grænmeti. Í áskriftinni væri til dæmis hægt að bjóða upp á banan, epli og gulrætur. Á þeim árstíma sem mandarínur fást gætu þær svo bæst í hópinn.

Skólamáltíðir

Í mörgum skólum gefst nemendum kostur á að kaupa máltíð í hádeginu. Tilvalið er að nota mikið af grænmeti við matseldina og bjóða einnig upp á það hrátt með matnum. Ávextirnir gætu svo verið sem eftirmatur. Hvað ungur nemur gamall temur. Ef börn venjast því í uppvextinum að grænmeti sé haft með öllum mat, má ætla að grænmetisneysla verði hluti af lífsstíl þeirra.

Fræðsla

Ekki má gera lítið úr mikilvægi þess að fræða börn og unglinga um hollustugildi ávaxta og grænmetis. Öll umfjöllun um þennan fæðuflokk er af hinu góða. Slík fræðsla fer meðal annars fram í heimilisfræðitímum, en hægt er að tengja hana nánast hverju einasta fagi. Þannig mætti í stærðfræðidæmum reikna út fjölda ávaxta, í tungumálum þýða heiti þeirra o.s.frv.

Það læra börnin sem fyrir þeim er haft

Þótt skólinn hafi verið hér til umræðu, má ekki gleyma ábyrgð heimilanna. Ekki þurfa ávextir og grænmeti síður að vera á boðstólum heima fyrir en í skólunum. Foreldrar kvarta oft undan verðlagi á þessum vörum og telja sig ekki hafa efni á að kaupa þá inn til heimilisins. Vissulega er það rétt að oft er grænmeti dýrt. Verðlagið sveiflast nokkuð og mikilvægt er að fylgjast vel með og kaupa þær tegundir, sem eru ódýrastar þá stundina. Foreldrar mega ekki gleyma því, að ef þeir ala börn sín upp við ríflega ávaxta- og grænmetisneyslu, eru þeir að stuðla að góðri heilsu barnanna alla ævi








Þetta vefsvæði byggir á Eplica