Sími : 5 800 900
Manneldi

Er þyngdin í lagi?

Er þyngdin í lagi?

Þú getur reiknað hvort þyngdin sé innan æskilegra marka með því að deila í þyngd þína í kílóum með hæðinni í metrum í öðru veldi (kg/m2). Þannig fæst ákveðinn stuðull sem nefnist BMI (Body Mass Index).

Samkvæmt viðmiðunarmörkum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, er vannæring, kjörþyngd, ofþyngd og offita fyrir fullorðna skilgreind á eftirfarndi hátt:

        Vannæring:    BMI minna en 18.5
        Kjörþyngd:    BMI á bilinu 18.5-24.9
        Ofþyngd:       BMI á bilinu 25.0-29.9
        Offita:            BMI stærra en eða jafnt og 30

Rétt er að benda á að stuðullinn tekur ekki tillit til mismunandi líkamsbyggingar fólks. Hann greinir t.d. ekki á milli þyngdar vöðva og fitu þannig að vöðvamikill og grannur einstaklingur getur lent í ofþyngdarhópnum.

Ef þú slærð inn þyngd þína og hæð þá færð þú upplýsingar um hvort holdafarið er innan æskilegra marka.

Mundu að slá hæð inn í metrum og notaðu punkt en ekki kommu.

Þyngd í kílóum:
Hæð í metrum:






Þetta vefsvæði byggir á Eplica