Sími : 5 800 900
Manneldi

Skammtakerfi matarkörfu

Brauð, aðrar kornvörur og kartöflur – 5-10 skammtar á dag!
Einn skammtur úr þessum flokki getur verið: 1 brauðsneið, ½ rúnnstykki, 2 hrökkbrauðsneiðar eða bruður, 1 gróf kexkaka, 1,5 dl af ósykruðu morgunkorni, 1 dl af soðnu pasta eða hrísgrjónum, 2 litlar kartöflur eða ein stór. Veljið frekar grófar kornvörur og brauð.

Grænmeti – a.m.k. 2 skammtar á dag!
Einn skammtur getur verið eitt meðalstórt stykki eða 100 g þ.e.1,5 dl af soðnu grænmeti eða 2 dl af hráu salati án sósu. Ef notuð er salatsósa, eða grænmetið steikt í feiti þarf að telja það með fituskömmtum.

Ávextir og ber – a.m.k. 2 skammtar á dag!

Einn skammtur getur verið eitt meðalstórt stykki, t.d. epli, appelsína eða banani, glas af hreinum ávaxtasafa (eitt glas á dag er hæfilegt magn), 1/2 dl af þurrkuðum ávöxtum eða 1 dl af niðursoðnum eða bituðum ávöxtum.

Kjöt, kjötálegg, fiskur, egg, baunir og hnetur – 1-2 skammtar á dag!
Einn skammtur getur verið 100 g af mögru kjöti eða fiski, 1 egg, 2 dl af soðnum baunum eða ½ dl (30g) af hnetum.

Mjólk og mjólkurvörur – 2 skammtar á dag!
Einn skammtur getur verið 1 glas af mjólk eða súrmjólk, ein dós af skyri eða jógúrti, 100 g af kotasælu eða 4 ostsneiðar. Munið að velja fituminni vörurnar!

Feitmeti – 1-3 skammtar á dag!
Einn skammtur getur verið 1 msk af smjöri, feiti eða olíu, majonessósu eða annarri feitri sósu, eða 0,5 dl af majonessalati. Eins bætist við fituskammtur ef borðuð er rjómalöguð eða feit súpa eða annað sem er feitt. Veljið frekar olíu eða mjúka fitu í staðinn fyrir harða fitu á borð við smjörlíki eða smjör.

Samsettir réttir
Margt sem við borðum er samsett úr mörgum flokkum, og fellur því illa að þessu skammtakerfi. Það á við t.d. um lasagna, sem er ostur og pasta, eða baka sem er oftast egg, ostur og rjómi. Þá er hægt að áætla skammta úr viðeigandi flokkum. Skammtakerfið er hins vegar eingöngu ætlað til að gefa einhverja hugmynd að hæfilegri stærð skammta. Það er alls ekki ætlunin að allt eigi að vera vegið og mælt.

Sælgæti, ís, sætt kex, kökur, vín, bjór eða sætir gosdrykkir eru ekki með í skammtakerfinu. Mikið magn af þessum vörum dregur úr næringargildi fæðunnar þar sem að þau koma þá í staðinn fyrir hollan mat. Ef ekki er minnkað magnið af öðrum mat á móti eykst hættan á því að fitna. Gætið hófsemi í neyslu og njótið!








Þetta vefsvæði byggir á Eplica