Atvinnuleysi
Efnahagsþrengingarnar á Íslandi snerta alla í landinu af mismiklum þunga þó. Mjög margir eru atvinnulausir en ýmislegt er verið að gera til að reyna að gera fólki atvinnuleysið bærilegra. Margar stofnanir og félög bjóða úrræði, námsskeið og ókeypis aðstoð. Hér á síðunni eru tenglar í marga þessa aðila.
Hvar er aðstoð og úrræði að fá?
UNGT FÓLK
Styrktarsjóður Lýðheilsustöðvar fyrir ungt atvinnulaust fólk sumarið 2009. Umsóknarfrestur til 10. júlí. http://www.lydheilsustod.is/ungt-folk/heilsa-og-lifsstill/styrktarsjodur/nr/2787
Opinberir aðilar
Á vefsíðunni www.island.is eru upplýsingar frá ríkisstjórn Íslands.
Sveitarfélög
Sveitarfélögin eru að bjóða íbúum ýmsa aðstoð og úrræði og birtast upplýsingar um þau á vefsíðu sveitarfélagsins.
Rauði krossinn
Rauði krossinn hefur tekið saman skýrslu (apríl 2009) yfir flesta sem bjóða fram aðstoð við fólk í efnahagsþrengingum.
Rauðakrosshúsið
Í Rauðakrosshúsinu er margt á dagskrá á hverjum degi.
Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík býður ókeypis sumarnámskeið fyrir börn.
http://redcross.is/Apps/WebObjects/RedCross.woa/wa/dp?detail=1014463&name=frettasida
Hjálparsími Rauða krossins
Síminn er opinn allan sólarhringinn - alltaf einhver til að tala við um hvaðeina sem fólki liggur á hjarta.
Þjóðkirkjan
Í kirkjum landsins er ýmsa aðstoð hægt að fá, eins og fram kemur á vefsíðu Þjóðkirkjunnar: http://kirkjan.is/thjonusta-kirkjunnar-a-erfidum-timum
Hjálparvakt tannlækna
Tannlæknar í samstarfi við tannlæknadeild Háskóla Íslands bjóða börnum foreldra sem búa við þrengingar ókeypis tannlæknisaðstoð á ákveðnum tímum.
Dreifðu um vefinn
