Karíus og Baktus fara ekki í jólafrí!
Kæru jólasveinar, velkomnir til byggða!
Við hjá Lýðheilsustöð viljum biðja ykkur að gæta hófs í sælgætisgjöfum. Það er mikið sælgæti í boði fyrir börnin okkar. Í matvöruverslunum og sjoppum eru heilu sælgætisbarirnir og blessuð börnin horfa þar löngunaraugum á litadýrðina.

Sumir af okkur foreldrunum reyna að stemma stigu við sælgætisneyslu barnanna með því að hafa ákveðið skipulag á sætindaáti, t.d. með því að hafa sérstakan nammidag aðeins einu sinni í viku. Við hvetjum því alla jólasveina til að gefa börnum frekar ávexti, t.d. epli, mandarínur, vínber, eða bara lítil leikföng eða bækur.
Með kveðju frá Lýðheilsustöð
