Tannburstun
Hvernig á tannburstinn að vera?
Notaðu tannbursta með mjúkum hárum sem sitja þétt. Of harður tannbursti getur valdið sliti á tönnunum og sárum á tannholdinu. Mælt er með að nota tannbursta með litlu burstahöfði því auðveldara er að koma honum að öllum tannflötunum. Tannbursti með slitunum og skældum hárum hreinsar ekki. Nauðsynlegt er því að skipta reglulega um tannbursta.
Tannbursti með mjúkum, þéttum hárum
Skaði þar sem of harður tannbursti hefur verið notaður
Hve oft þarf að bursta?
Tvisvar á dag, að loknum morgunverði og að lokinni síðustu máltíð eða aukabita dagsins. Mikilvægt er að sofa með hreinar tennur. Þegar við sofum er munnvatnsframleiðslan í lágmarki en munnvatnið gegnir mikilvægu hlutverki í að viðhalda tönnunum heilum (heilbrigðum).
Ónýtur tannbursti með slitnum og skældum hárum
Hvernig tannkrem er best að nota?
Veldu tannkrem sem inniheldur flúor. Flúorinn styrkir glerunginn og getur dregið úr tannskemmdum
Mælt er með að tannkremið innihaldi flúor að styrkleika 0.1% eða 1000 ppm. Hægt er að sjá flúorstyrk tannkremsins á innihaldslýsingu vörunnar..
Á markaði eru barnatannkrem sem innihalda ekki nægilegum flúorstyrkleika og er ráðlagt að nota þau ekki fyrir börnin.
Tannkrem gefur frískt bragð í munninn.
Á markaði eru tannkrem sem innihalda ýmis önnur efni sem getur dregið úr tannholdssjúkdómum, tannstein, viðkvæmum tannhálsum. Leitaðu ráða hjá tannlækni/tannfræðingi þínum.
Hvernig á ég að bursta tennurnar?
Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma, vera meðvitaður um að bursta skipulega, byrja alltaf á sama stað og vera viss um að hafa burstað alla tannfletina þegar lokið er við tannburstunina. Gera má ráð fyrir að góð tannburstun taki um 2 mínútur. Hægt er að bursta tennurnar með ýmsum hætti en mestu máli skiptir að allir fletir tannanna séu burstaðir hreinir.
Byrjaðu t.d. hægra megin að utanverðu. Láttu burstahárin snerta tennurnar og vísa á ská upp að tannholdinu. Ýttu á burstann svo að hárin þrýstist milli tannanna og að tannholdsbrúninni og nuddaðu. Nuddaður fram og aftur með stuttum hreyfingum sem nemur hálfri tannbreidd- Síðan færirðu burstann framar og heldurðu áfram þar til þú ert búinn með allar tennurnar í efri gómi að utan.
- Haltu áfram með innri hliðina á tönnunum í efri gómi. Gleymdu ekki að bursta bak við öftustu tönnina.

- Þegar framtennurnar eru burstaðar að innan þarf að reisa tannburstann upp á endann og nudda upp og niður.
- Síðan eru bitfletir jaxlanna burstaðir. Farðu vel ofan í skorurnar svo að þú fjarlægir tannsýkluna sem þar situr.
- Þegar búið er að bursta uppi er haldið áfram í neðri gómi á sama hátt.
Flúor úr tannkreminu heldur áfram að virka á tennurnar eftir tannburstun þannig að litlir úrkölkunarblettir ná e.t.v. að kalkast aftur. Því er mikilvægt er að flúortannkremið sé ekki skolað af tönnunum, bara skyrpt. Ekkert sakar þótt þú kyngir svolitlu flúortannkremi. Ef þú vilt skola munninn eftir tannburstun skaltu setja örlítið tannkrem aftur á burstann og bursta létt yfir tennurnar og skyrpa.
Þvoðu burstann og láttu hann þorna.
Smelltu á bláa hnappinn hér til hægri til að sjá lifandi myndefni sem sýnir aðferð við tannburstun.


