Sími : 5 800 900
Tannheilsa

Hreinar tennur - heilar tennur

Tannheilsa er jafn mikilvæg og almenn heilsa. Hreinar og heilar tennur bæta almenna líðan en skemmdum tönnum og bólgnu tannholdi getur fylgt vanlíðan. Eigin tennur alla ævi eru eftirsóknarverð lífsgæði og það er undir okkur sjálfum komið hvernig til tekst. 

Tannkrem eru gerð til að halda tönnunum hreinum og heilum og í þeim eru ýmis efni sem gegna því hlutverki. Munnholið er bústaður baktería og ákveðnar tegundir þeirra líma sig við yfirborðið tannanna og mynda þar skán. Skánina þarf að hreinsa burt  með reglulegu millibili og það er gert með aðstoð tannkrems, tannbursta og tannþráðar. Ef stöðugt er verið að borða og mikið er af sykri í fæðunni, myndast skánin hraðar.  Ef tennurnar eru ekki hreinsaðar reglulega og skánin nær að safnast fyrir hindrar hún það að munnvatnið komist að yfirborði tannanna og  tannskemmdir geta myndast. Sá tími sem það tekur tannskemmdina að grafa sig í gegnum glerunginn er breytilegur, frá nokkrum mánuðum upp í nokkur ár. Hægt er að stöðva tannskemmd á byrjunarstigi og lækna eða endurherða glerunginn en ef skemmdin er komin í gegnum glerunginn og inn í tannbein verður að hreinsa burt skemmdan tannvef og setja fyllingu í staðinn.  Tannkremsmagn

Til að verjast tannskemmdum, draga úr hraða eða lagfæra byrjandi tannskemmd er mælt með notkun flúors en regluleg notkun á flúortannkremi minnkar líkur á myndun tannskemmda um 25%.  Flúor er mikilvægasta efnið í tannkremi. Mælt er með tannkremi með flúorstyrk 0,1% við tannburstun barna yngri en sex ára en eldri aldurshópar geta valið um tannkrem með flúorstyrk frá 0,10% upp í 0,15% flúor. Börn kyngja almennt stórum hluta tannkremsins sem upp í þau fer og því er mikilvægt að börn undir sex ára aldri skammti sér það ekki sjálf  og öruggast að geyma tannkremið þar sem þau ná ekki í það. Við tannburstun barns, sem er að taka sínar fyrstu tennur og fram að tveggja ára aldri, ætti að nota það magn flúortannkrems sem nemur einum fjórða af stærð naglar á litla fingri barnsins. Þegar allar barnatennurnar tuttugu eru komnar upp  og til sex ára aldurs, ætti að nota það magn flúortannkrems  sem samsvarar allri nögl barnsins á litla fingri.

Sótthreinsiefnum er bætt í ákveðnar tegundir tannkrema og þannig reynt að halda munnbakteríum í skefjum. Tríklósan  er eitt þessara efna og hefur sýnt sig að daga úr bólgum í tannholdi þó áhrif á tannskemmandi bakteríur séu minni en vonir voru bundnar við.  Verið er að rannsaka áhrif broddmjólkur í tannkremi en ennþá  bendir flest til þess að jákvæð áhrif séu fyrst og fremst bundin við slímhúð munns en minna við tannyfirborð.  Önnur efni eru fægiefni  ýmis konar(s.s. “calcium phosphates, alumina, calcium carbonate, silica” en æskilegt er að nota í hófi tannkrem sem rík eru af fægiefnum. Sápuefnið  “sodium lauryl sulfate” (SLS) finnst í flestum tannkremstegundum  en virðist geta framkallað munnangur og því er þeim sem eiga vanda til þess  ráðlagt að nota frekar sápulaus tannkrem (Zendium). 

Börn geta ekki hreinsað tennurnar nægilega vel sjálf með tannbursta, flúortannkremi og tannþræði  fyrr en um tíu ára aldur.

Ekki er mælt með því að skola munn eftir tannburstun, það nægir að skyrpa. Þannig virkar flúorinn í tannkreminu lengur og tennurnar styrkjast.

Greinin birtist í Blaðinu í tannverndarviku 2006

Höfundur: Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir








Þetta vefsvæði byggir á Eplica