Sími : 5 800 900
Tannheilsa

Tannþráður - Taktu upp þráðinn

Upplýsingar og leiðbeiningar um notkun tannþráðar.

Það er ekki nóg að bursta tennurnar - það þarf líka að nota tannþráð

Samkvæmt nýlegri rannsókn Lýðheilsustöðvar, Heilsa og líðan Íslendinga 2007, eru landsmenn almennnt duglegir að bursta tennurnar en aðeins 12% karla og 24% kvenna, á aldrinum 18-79 ára, nota tannþráðinn daglega. Ef viðhalda á góðri tannheilsu er nauðsynlegt að hreinsa á milli tannanna með tannþræði einu sinni á dag. Börn geta ekki séð um tannhirðuna sjálf fyrr en 10-12 ára og sum þurfa aðstoð með tannþráðinn lengur.

Nýtt fræðslumyndband - Taktu upp þráðinn

Taktu upp þráðinn, fræðslumyndband. Smellið á myndina til að skoða myndbandið. Í tilefni af tannverndarviku 2009 var útbúin stutt lifandi fræðsla um tannþráð og notkun hans, undir heitinu Taktu upp þráðinn. Með því að smella á rauðu myndina hér til hliðar er hægt að skoða myndbandið.
Textinn hér á síðunni og myndirnar skýra þetta einnig.

Fræðslan hér á síðunni til útprentunar í A4 stærð (pdf-skjal, opnast í nýjum glugga)

Sambærilegt skjal fyrir leikskóla (.pdf-skjal)

Hvers vegna þarf að nota tannþráð?

Tennur með skán. smellið á myndina til að stækkaÁ yfirborð tanna sest skán sem inniheldur bakteríur og matarleifar og getur orsakað tannskemmdir og bólgur í tannholdi ef hún er ekki hreinsuð af með reglulegu millibili, með tannbursta, tannkremi og tannþræði.

Blæðing frá tannholdi. Smellið á mynd til að stækka.Ef blæðir úr tannholdi eru það augljós merki um bólgur í tannholdi og að nauðsynlegt er að hreinsa enn betur.

(Sjá myndband hér neðst).

Tannburstinn nær ekki að bursta allar hliðar tannarinnar, því þarf tannþráð milli tannanna.

Tannþráð þarf að nota á barna- og fullorðinstennur því tannburstinn nær ekki að hreinsa nema þrjár (bláar) af fimm hliðum tannanna. Hinar tvær (rauðar) þarf að hreinsa með tannþræði daglega.

 

 

Hvernig tannþráð á að nota? 

Tannþráður og tannþráðartæki. Smellið á myndt til að stækkaÞann tannþráð sem hverjum og einum líkar best við. Vaxborinn tannþráður smýgur vel á milli tanna þar sem tannbilin eru þröng. Þráður sem inniheldur flúor styrkir glerung tanna. Bragðefni í tannþræði gefa ferskara bragð í munninn. Til eru ýmsar gerðir handfanga fyrir tannþráð, bæði einnota og fjölnota, sem geta auðveldað hreinsunina.

 

 

 

Svona er tannþráður notaður:

Æfingin skapar meistarann - Gott ráð er að byrja alltaf á tannþræðinum og bursta svo.

Tannþráður milli fingra. smellið á myndina til að stækka

Þræðinum er vafið um vinstri og hægri vísifingur. Notið þumla og löngutöng til að halda þræðinum og hafið þráðinn stuttan milli fingranna.

 

 

 

Tannþráður 1. Smellið á mynd til að stækka.Strekktur þráðurinn er færður upp og niður eftir tönninni, fyrst öðru megin tannbilsins síðan síðan hinu megin. Þræðinum er stýrt varlega milli tannanna alveg niður í glufuna milli tannar og tannholds. Þráðurinn þarf að nuddast þétt við tennurnar allan tímann. Það sama gildir um tannþráð í haldara.

Tannthradur_3Svona eru öll tannbilin hreinsuð bæði í neðri og efri gómi. Góð venja er að byrja alltaf á sama stað og finna bestu leiðina svo ekkert tannbil gleymist. Notið tannþráðinn fyrst – bustið svo.

 

 

 

 

Frekari fróðleikur

Tannskemmdir

Rótarskemmdir

Bólga í tannholdi - myndband sem sýnir orsakir og afleiðingar bólgu í tannholdi

Millitannbursti

Jaxlinn - teiknimynd um tannþráð

Greinar

--------------     

Hluti myndanna hér á síðunni eru birtar með leyfi danska tannlæknfélagsins (DTF í Danmörku)og tannheilsugæslunnar í Greve, Danmörku.

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica