Sími : 5 800 900
Tóbak

Möguleg fráhvarfseinkenni nikótíns

Margir byrja aftur að reykja af því að þeim finnst þeir ekki ráða við fráhvarfseinkennin. Fyrstu dagarnir eru kannski ekki skemmtilegir en einkennin eru eðlileg merki um að líkami þinn er að jafna sig.

Ef þú vilt ná árangri, þarft þú að læra nýjar venjur og bjargráð. Vertu góð/ur við sjálfa/n þig og ekki gera þér erfiðara fyrir en þörf er á.

einkenn_frahvarf

einkenn_frahvarf2

Nikótínlyf eða nikótínlaus lyf geta hjálpað þér að takast á við fráhvarfseinkennin og venjast því að reykja ekki. Hjá símaráðgjöfinni, Ráðgjöf í reykbindindi, getur þú fengið leiðbeiningar um hvað hentar þér. Þú getur einnig spurt lækni, hjúkrunarfræðing eða lyfjafræðing.

Heimild: Bæklingurinn Hættu fyrir lífið, gefinn út af Krabbameinsfélaginu, Lýðheilsustöð og Landspítala háskólasjúkrahúsi (2006). Hægt er að panta bæklinginn.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica