Sími : 5 800 900
Tóbak

Áhyggjur af því að þyngjast

Sumt fólk heldur áfram að reykja af ótta við að þyngjast. Í rauninni bæta fyrrum reykingamenn að meðaltali aðeins um 2-5 kílógrömmum á sig við að hætta að reykja.

Fólk þyngist stundum af því að:

  • Nikótín dró úr matarlyst og hraðaði efnaskiptum.
  • Reykingar hafa áhrif á bragð- og lyktarskyn. Matur bragðast betur eftir að þú hættir að reykja.
  • Sígarettum er skipt út fyrir sætindi og snarl eða matarvenjur breytast.

Til að forðast þyngdaraukningu þarftu að:

  • Fylgjast með hvað þú borðar og forðast hitaeiningaríkt fæði og sætindi.
  • Hreyfa þig meira, jafnvel stutt ganga hjálpar.
  • Notaðu tækifærið og bættu mataræðið þegar þú hættir að reykja.

Það er skynsamlegt að gæta þess að borða hollt fæði frá upphafi. Það kemur í veg fyrir að þú takir upp óholla siði, eins og að borða súkkulaði í stað þess að reykja, sem eykur líkur á þyngdaraukningu. Reyndu að sjá þig fyrir þér eins og þú vilt líta út. Þegar þú ákveður hvað þú ætlar að borða, leiddu þá hugann að því hvort sá matur muni hjálpa þér að öðlast það útlit.

mundu

Nánari upplýsingar um heilbrigða lífshætti er að finna undir liðunum Hreyfing og Næring og holdafar hér á heimasíðu Lýðheilsustöðvar.

Heimild: Bæklingurinn Hættu fyrir lífið, gefinn út af Krabbameinsfélaginu, Lýðheilsustöð og Landspítala háskólasjúkrahúsi (2006). Hægt er að panta bæklinginn.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica