Sími : 5 800 900
Tóbak

Örsögur í samkeppninni Frítt til Evrópu - fyrir reyklausa!

Hérna eru sýnishorn úr þeim mikla fjölda örsaga sem borist hafa í samkeppnina Frítt til Evrópu - fyrir reyklausa. Höfundar þessara sagna fá 10.000 kr. fataúttekt í vinning. Sýna þær vel að ungt fólk leiðir hugann mikið að neikvæðum áhrifum reykinga.

Er þetta í alvörunni þess virði?

Ég vil hætta að reykja vegna þess að maður horfir upp á það aftur og aftur að fólk hreinlega skemmist! Það fær hóstaköst, tennurnar verða ógeðslegar, húðin verður þykk og hrukkótt og það sést langar leiðir á manneskjunni að hún reykir. Er þetta í alvörunni þess virði að borga fyrir 600 krónur á dag? 219.000 kr. á ári? Nei takk, frekar vil ég eiga peninginn.

Hvað er maður eiginlega að fá gott út úr þessu? Jú, sumir segja að maður verði grennri. -Já er það já, værirðu til í að útskýra hvernig? Þá fær maður svarið að í staðinn fyrir að nota pásurnar sínar í t.d. vinnu eða skóla í að borða, fer það út að reykja. Þá að sjálfsögðu grennist maður en þú getur líka grennst ef þú ferð út að dansa í öllum pásum í staðinn fyrir að reykja, þannig að þetta er ekki sígarettunum að þakka.

Aðrir segja að þetta rói mann niður þegar maður er pirraður. Maður viti, sama hvað gerist, að maður getur alltaf stólað á sígaretturnar til að róa sig niður þegar heimurinn snýst gegn manni og vinir hverfa. Einmitt. Fáðu þér te og hlustaðu á Sigur Rós, það róar þig líka niður. Enn aðrir segja að maður fitni þegar maður hætti. Það getur alveg gerst ef maður fer að borða í öllum ,,sígópásum", en það er algjörlega á þínu valdi hvað þú gerir við þessar 5 mínútna sígópásur þínar þegar þú hættir að reykja. Þú gætir þess vegna farið í göngutúr eða fengið þér te og hlustað á Sigur Rós!

En hvers vegna ekki að sleppa bara reykingum? Með því að gera það losnar maður við allt þetta vesen, peningavandræði, pirring, ,,reddingar" þegar maður getur ekki keypt sjálfur, og síðast en ekki síst fordóma gegn reykingamönnum sem ég ætla ekki einu sinni að fara út í hér.

Takk fyrir.

Stelpa í flokki þeirra sem reykir öðru hvoru en vill hætta

Betra að spara, halda ruglinu í lágmarki og láta drauma sína rætast

Til hvers að eyða öllum peningunum sínum í tóbak og rugl? Sérstaklega þar sem ungt fólk er oft í skóla og hefur ekki mikla peninga á milli handanna. Það er miklu betra að spara og halda ruglinu í lágmarki.

Þegar maður hefur sparað nóg getur maður síðan látið drauma sína rætast eins og til dæmis ferðast. Það er eflaust draumur annars hvers unglings að geta ferðast. Draumur minn er að ferðast og ég reyni að spara eins mikið og ég get til þess að geta það. Ég reyki ekki, drekk ekki og held kaupum á dýrum fatnaði í lágmarki. Núna er ég að spara fyrir skiptinemanámi og er að láta þann draum minn rætast. Seinna mun ég safna pening til þess að ég geti farið í bakpokaferðalag, annað hvort í Evrópu eða Suður-Ameríku. Allt þetta væri helmingi erfiðara ef ég þyrfti alltaf að eyða hluta af peningunum sem ég vinn fyrir í sígarettur eða annað slíkt.

Við þurfum öll að taka ákvarðanir í lífinu. Það að byrja aldrei að reykja er mikilvæg ákvörðun fyrir framtíðina. Það að láta hópþrýsting ekki á sig fá er aðdáunarvert. Fólk ber virðingu fyrir fólki sem er nógu sjálfstætt og hefur nógu sterkan persónuleika og vilja til þess að geta sagt "nei takk"!

Verum stolt af okkur sem reykjum ekki og kunnum að segja nei!

Stelpa sem reykir ekki

Hugsar fólk betur um bílana sína en sig sjálft?

Ég man alltaf eftir fyrsta líffræðitímanum mínum fyrr í haust. Þar vorum við að tala um mikilvæg líffæri og fór kennarinn að tala um lungun og reykingar. Hann talaði um hversu skaðlegar þær væru og allar afleiðingarnar sem þeim fylgdu, og svona allt þetta sem maður heyrir frá degi til dags. Þá segir hann eitt sem vekur athygli mína:

„Mér finnst stundum eins og fólk hugsi betur um bílana sína en sig sjálft"

Þetta skildi enginn. Enda hélt kennarinn áfram:

„Já, engum myndi detta í hug að hella einhverjum óþverra á vélina í bílnum sínum til að skemma hana, samt virðist það ekki eiga í neinum vanda með að fylla lungun sín af tjöru"

Þetta finnst mér vera ein besta leiðin sem ég hef heyrt til að lýsa viðhorfi fólks til reykinga í dag, þó að auðvitað séu margir eins og ég sem eru á móti þeim. Af hverju reykleysi spyrjið þið? Því það er alltaf hægt að kaupa nýja vél, en ekki ný lungu.

Stelpa í flokki þeirra sem reykja ekki

Ég vil hætta!

Afhverju reykleysi? Það er góð spurning. En væri ekki betra að segja afhverju ekki reykleysi? Ef maður reykir, þá verður maður mjög líklega illa lyktandi, andfúll, sífellt hóstandi, þolminni, og svona má næstum endalaust telja. Þar að auki veldur þetta aukningu á fitujukki í kransæðunum. Faðir minn er búinn að fara í fjöldann af kransæðaaðgerðum, blása æðarnar út, fóðringar til að halda æðunum opnum og hvaðeina útaf þessu. Ég vill ekki verða svoleiðis. Það krefst ekki mikils. Það eina sem þarf er að vilja og leita sér hjálpar. Ég VIL hætta!

Strákur í flokki þeirra sem reykja en vilja hætta.

Að láta ekki undan þrýstingi . . .

Þegar ég var í 8. bekk var ég í vinahóp sem var að byrja á að fikta að reykja. Við vorum 4 stelpur, allar bestu vinkonur til nokkurra ára. Þær byrjuðu að læðast á bakvið hús sem var rétt hjá skólanum í frímínútum með strákunum í 9. bekk og auðvitað fór ég með því jú, ég var partur af hópnum. Fyrst voru það bara 2 sem byrjuðu á þessu og við vorum 2 sem reyktum ekki, fórum bara með. Á nokkrum dögum lét önnur okkar eftir, en sem betur fer var það ekki ég. Svona gekk þetta út grunnskólann og alltaf var verið að reyna að fá mig til að byrja að reykja og vera partur af hópnum, en ég lét ekki undan og varð alltaf ákveðnari og ákveðnari í að láta ekki undan eftir því sem þau reyndu oftar að fá mig til að byrja. Það héldu auðvitað allir að ég myndi reykja því ég fór alltaf með þeim á bak við þetta hús meðan þau voru að reykja, en mér var alveg sama hvað öðrum fannst á meðan ég og fólk sem mér þótti vænt um vissi að ég myndi ekki snerta þetta. Þegar við vorum í 10. bekk byrjuðu vinir mínir að veita mér mikla virðingu fyrir að hafa aldrei látið undan þessum sterka hópþrýstingi.

Í dag reykja þær allar ennþá og eru búnar að gera margar tilraunir til að hætta en ekkert gengur. Mikið er ég fegin að hafa ekki byrjað á þessu rugli.

Þessar sögur um að "ef þú gerir ekki eins og við þá færðu ekki að vera með" eru bara rugl að mínu mati. Ef vinir þínir samþykkja þig ekki eins og þú ert þá eru það ekki vinir fyrir 5 aura og þá áttu miklu betra skilið.

Stelpa í flokki þeirra sem reykja ekki

Á ekki fyrir bílprófinu . . .

Ég hef velt því fyrir mér lengi afhverju ég byrjaði að reykja, ég held að það hafi verið uppreisn gegn foreldrum mínum. En núna 2 árum seinna er ég stödd í verstu martröð lífs míns, megnið af öllum mínum peningum fara í að fjármagna reykingarnar, þegar ég var lítil gerði ég samning við foreldra mína að ef ég væri ekki byrjuð að reykja 17 ára gömul myndu þau borga bílprófið mitt en ég þurfti að klúðra því, og núna á ég ekki peninga fyrir bílrófinu sem ég ætti annars að taka núna í júlí. ég hitti líka æðislegan strák fyrir ekki svo löngu síðan en hann þoldi ekki reykingar og því urðum við að hætta að hittast. Ef ég gæti spólað til baka hefði ég ekki tekið fyrsta smókinn, því ég varð háð reykingum mjög fljótt eftisr fyrsta smókinn. Ef eg hefði ekki byrjað að reykja gæti ég farið út að hlaupa og hreyft mig með reyklausum vinum mínum en þar sem þolið mitt er í lágmarki get eg skokkað yfir í næstu blokk en samt verið alveg að kafna. Reykingar eru mesta eitur og ég sé eftir því daglega að hafa byrjað.

Stelpa í flokki þeirra sem reykja en vilja hætta.

Taka þátt í Frítt til Evrópu

Viltu taka þátt í samkeppninn Frítt til Evrópu - fyrir reyklausa?

Smelltu þá á myndina til hægri.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica