Reyklaus veitingahús - upplýsingasíða
Samþykktar hafa verið á Alþingi breytingar á tóbaksvarnalögum sem fela það í sér að veitinga- og skemmtistaðir mega ekki leyfa reykingar í þjónusturými sínu eftir 1. júní 2007. Samtök ferðaþjónustunnar og hagsmunasamtök starfsfólks í veitingarekstri eru meðal þeirra sem hvöttu til lagabreytingarinnar.
Upplýsingarnar á þessari síðu eru liður í að kynna ýmislegt sem tengist þessum breytingum.

|
Bæklingar Límmiðar og borðspjöld Veggspjald Leiðbeiningar f/starfsfólk veitinga- og skemmtistaða Auglýsinga- og kynningarefni Áhrif á rekstur og viðhorf viðskiptavina Eftirlit og viðurlög |
Sjá svörin við ofangreindum spurningum og fleiri spurningar og svör. |
|
Hreint loft á veitingastöðum - fyrir gesti og starfsfólk Heilsa starfsmanna er ástæðan. Óbeinar reykingar eru mjög skaðlegar heilsu fólks. Þær geta haft skammtímaáhrif, eins og ertingu í augum og hálsi, en líka alvarlegri áhrif, s.s. aukið líkur á að fá hjartaáfall, lungnakrabbamein og heilablóðfall. Óbeinar reykingar eru líka sérstaklega slæmar fyrir þungaðar konur, börn, fólk með astma og öndunarfæravandamál og vandamál í hjarta og æðakerfi. Hótel- og veitingamenn hafa síðustu árin stigið ýmis skref innan samtaka sinna til að fjölga reyklausum svæðum í veitingasölum og fjölga reyklausum gistiherbergjum auk þess sem flestir gististaðir hafa lengi boðið reyklausan morgunverð. Nú er svo komið að á annað hundrað veitingastaða á Íslandi eru alveg reyklausir og fjölmargir staðir til viðbótar leyfa ekki reykingar í matsölum. |
Lög
Reglugerðir
|
|
Ísland er eitt fjölmargra landa sem setur lög um |
|
|
|


- Skoða og panta




reyklaus veitingahús. Fyrst var það gert í Kaliforníuríki árið 1998 og nú hafa slík lög tekið gildi víða í Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. 
