Sími : 5 800 900
Tóbak

Reyklaus veitingahús - Hvers vegna?

Hreint loft á veitingastöðum – fyrir gesti og starfsfólk. Hótel- og veitingamenn hafa síðustu árin stigið ýmis skref innan samtaka sinna til að fjölga reyklausum svæðum í veitingasölum og fjölga reyklausum gistiherbergjum auk þess sem flestir gististaðir hafa lengi boðið reyklausan morgunverð.

hvers_vegnareyklausir_mynd3

Nú er svo komið að á annað hundrað veitingastaða eru alveg reyklausir og fjölmargir staðir til viðbótar leyfa ekki reykingar í matsölum. Þegar nokkur Evrópulönd, þ.m.t. Svíþjóð, Noregur og Írland, höfðu fyrir fáeinum árum ákveðið að gera alla veitingastaði í löndum sínum reyklausa fór umræðan fljótt að beinast í sama farveg hér á landi. Það gerðist því á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar árið 2005 að samþykkt var tillaga veitingamanna um að ganga til viðræðna við stjórnvöld um að reykingar yrðu bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum frá og með 1. júní 2007. Segja má að þær breytingar, sem nú þegar hafa verið gerðar, hafi verið í þágu gestanna en auknar umræður um starfsumhverfi þeirra sem vinna í reykmettuðu andrúmslofti hafi orðið til þess að lög um algert reykbann voru samþykkt.

Samtök ferðaþjónustunnar hvetja alla veitingastaði, sem enn leyfa reykingar, til að huga nú þegar að því hvernig þeir geti sem best staðið að þeim breytingum sem framundan eru, s.s. með góðum upplýsingum til gesta sinna.

Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar

Nánari umfjöllun:



Þetta vefsvæði byggir á Eplica