Reyklaus veitingahús - Reynsla annarra landa


Þróunin hefur verið í sömu átt í Evrópu og árið 2004 fengu Írar, Norðmenn og Möltubúar reyklausa veitingastaði. Árið 2005 bættist Ítalía í hópinn og Skotland árið 2006. Innleiðing laganna hefur gengið vel fyrir sig í öllum löndunum og ágætlega tekist að fá þeim framfylgt. Umræður um sams konar breytingar standa yfir víða og nýverið var t.d. ákveðið að veitinga- og skemmtistaðir í Frakklandi yrðu reyklausir árið 2007.
Bandaríkin - Maryland átjánda fylkið sem setur lög um reyklaus veitingahús
Maryland er átjánda fylkið í Bandaríkunum þar sem lög hafa um reyklaus veitingahús hafa tekið gildi. Hin fylkin eru: Arizona, California, Colorado, Connecticut, Delaware, Hawaii, Maine, Massachusetts, Montana, New Jersey, New Mexico, New York, Ohio, Rhode Island, Utah, Vermont og Washington. Fjögur fylki til viðbótar eru með lög með undanþágu fyrir bari þar sem eingöngu er staðið, þetta eru Florida, Idaho, Louisiana og Nevada.
Sjá nánar á vefsíðu tóbaksvarna í Maryland.
Norður Írland - Áætlað að bannið bjargi lífi 250 manns á ári
Reykingabann sem nær til allra lokaðra eða hálflokaðra vinnusvæða, tók gildi á Norður írlandi 30. apríl 2007. Innan þess ramma flokkast ölstofur, kaffihús og veitingastaðir og einnig sum ökutæki. Sérfræðingar þar í landi áætla að þetta muni bjarga lífi um 250 Norður Íra á ári hverju, bæði vegna þess að margir losna við óbeinar reykingar og einnig muni bannið verða mörgum sem reykja, hvatning til að hætta. Lagabreytingarnar njóta vítæks stuðnings almennings þrátt fyrir ákveðinn ótta við að draga muni úr viðskiptum á ölstofum.
Ítalía - Mikil ánægja með reyklaus veitingahús, ekki síst meðal ferðamanna
Veitingastaðir á Ítalíu hafa verið reyklausir frá því í byrjun janúar 2005. Komið hefur í ljós að flestallir eru mjög ánægðir með fyrirkomulagið og hefur það komið Ítölum skemmtilega á óvart að ferðamenn eru ekki síst ánægðir með þessar breytingar: ,,Ég fór til Ítalíu í maí 2005 og verð að segja að allt reyndist 100% í ferðinni. Ég heimsótti 16 veitingahús sem voru allt frá litlum kaffihúsum upp í fínustu veitingastaði. Alls staðar var reykingabannið virt. Hvort sem það var sólskin eða rigning, fóru allir sem vildur reykja, út undir bert loft. Það var dásamlegt að geta sest rólegur niður að fá sér að borða án þess að kvíða því að einhver sem fengi sér að reykja mynd setjast við næsta borð."
Sjá fleiri viðbrögð veitingahúsagesta á Ítalíu
Kanada - Reykingar heyra að mestu fortíðinni til
Í Kanada heyra daglegar reykingar eða snerting við reyk annarra, að mestu fortíðinni til. Þeim sem reykja, fækkar með hverju árinu og helst það í hendur við síaukna áherslu yfirvalda og lýðheilsufélaga á strangari lög og reglugerðir varðandi sölu og notkun á tóbaki. Reykingar hafa verið bannaðar á flestöllum vinnustöðum um langt skeið og hafa á undanförnum árum einnig verið bannaðar á veitingahúsum og öldurhúsum í flestum fylkjum Kanada.
Sjá nánar á fréttavef CBC í Kanada.
Noregur – Aðlögun gekk vel strax og heilsa starfsfólks batnaði
Reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum tók gildi 1. júní 2004 í Noregi. Miklar vangaveltur um afleiðingar þessa komu upp hjá landsmönnum vegna bannsins. Yfirvöld og samtök veitingahúsaeigenda voru hins vegar vel undirbúin og þótti kominn tími til að starfsfólk í veitingahúsageiranum öðlaðist þau sjálfsögðu réttindi að starfa í reyklausu umhverfi. Norðmenn gerðu eins árs úttekt í kjölfar bannsins og sýna niðurstöður hennar að norskir barir og veitingahús löguðu sig fljótt að nýjum aðstæðum, sem og gestir þessara staða. Fólk fór út til að reykja og starfsfólk vann í mun betra andrúmslofti auk þess sem heilsa þess batnaði.
Sjá nánar á vef norskra heilbrigðisyfirvalda.
Írland - Starfsmenn írskra kráa heilsuhraustari vegna reykingabanns
Starfsmenn á írskum öldurhúsum eru almennt heilsuhraustari nú þremur árum eftir að bann við reykingum á vinnustöðum var sett á í landinu. Í rannsókn sem gerð var á 73 starfsmönnum 42 kráa kemur fram að þeir séu nú í reykmettuðu andrúmslofti í aðeins 25 mínútur á viku, miðað við 40 klukkustundir fyrir bannið.
Í rannsókninni kemur einnig fram að loftmengun hafi minnkað um 83% á írskum krám og að krabbameinsvaldandi efni hafi minnkað um 80% síðan fyrir þremur árum. Útblástursmengun vegna bílaumferðar er það sem nú er helst talið ógna öndunarfærum Íra.
Reykingabanninu hefur verið afar vel tekið á Írlandi, en þar búa 4,2 milljónir manna og reykir um þriðjungur þeirra. Mörg Evrópulönd hafa fylgt fordæmi Íra í kjölfarið, en hér á landi verður slíkt bann sett á í júní nk.
Frétt sem birtist á mbl.is 16. apríl 2007
Sjá nánar í Sience Daily, um minnkun loftmengunar á írskum öldurhúsum.
