Sími : 5 800 900
Ýmislegt

Sólin, karlar og sortuæxli

Flestum líður vel í sólinni, ekki síst þegar hún fer að hækka á lofti eftir dimma vetrarmánuði. En því miður fylgir sólargeislunum ákveðin hætta á að fá krabbamein í húð. Tíðni húðkrabbameina hefur aukist mikið undanfarna áratugi og sérstaklega hjá fólki með ljósan hörundslit. Íslendingar eru þar því miður framarlega í flokki og hér greinast að meðaltali um 300 manns á ári með húðkrabbamein, þar af um 50 með sortuæxli í húð, sem er hættulegasta tegund húðkrabbameina. Ár hvert deyja að meðaltali átta Íslendingar af völdum sortuæxla í húð.

Í rannsókn á vegum Lýðheilsustöðvar (2007) kemur fram að um það bil helmingur landsmanna á aldrinum 18 til 40 ára hafði sólbrunnið, í sólinni eða ljósabekkjum, einu sinni eða oftar á undanförnum 12 mánuðum. Útfjólublá geislun, hvort sem hún kemur frá sólinni eða ljósabekkjum, er aðal orsök sortuæxla. Við það að brenna, hvort sem er í sólinni eða ljósabekk, aukast líkurnar á því að fá húðkrabbamein síðar á ævinni, sérstaklega er hættulegt að sólbrenna á æskuárunum.

En það er hægt að njóta sólargeislanna án þess að bera skaða af ef gætt er hófs og eftirfarandi haft í huga:

Forðast sólina um miðjan daginn. Frá klukkan 11 til 15 eru geislar sólarinnar sterkastir og um 60% af heildargeislun dagsins á sér stað á þessu tímabili. Meiri geislun getur náð til jarðar um hádegi á skýjuðum degi en á heiðskírum degi fjórum tímum síðar.

Föt eru besta sólarvörnin. Föt og hattur vernda best gegn sólargeislunum og sólaráburður óvarin svæði. Bera þarf á sig nægilegt magn af áburði með sólarvarnarstuðulinn 15 eða hærri, sem verndar gegn bæði A- og B- geislum. Bera þarf áburðinn á hálftíma áður en farið er í sólina og endurtaka á tveggja tíma fresti. Jafnvel vatnsþolinn áburður máist af við að þurrka sér með handklæði, með svita og við það að vera lengi í vatni.

Endurkast. Hvítur sandur og vatn endurkastar sólargeislunum þannig að þeir verða sterkari og hættan á að sólbruna eykst. Hér þarf því að gæta sérstaklega vel að sólarvörn.

Sólgleraugu. Jafnvel ódýr sólgleraugu verja augun gegn bæði A- og B-geislum. Sólgleraugu með hliðarhlífum verja enn betur.   

Sveinbjörn Kristjánsson

Fíflavöndur







Þetta vefsvæði byggir á Eplica