Sími : 5 800 900
Slysavarnir

Slysavarnir

Hnapparnir til vinstri vísa beint á flest það efni sem tengist slysavörnum. Lituðu fliparnir hér fyrir ofan gera það einnig en vísa jafnframt á aðra málaflokka sem heyra undir Lýðheilsustöð.

Starfsemi Lýðheilsustöðvar á sviði slysavarna snýr að fræðslu, ráðgjöf, rannsóknum og vinnu við forvarnaverkefni. Lýðheilsustöð er faglegur ráðgjafi stjórnvalda um slysavarnir. Markmiðið er að draga úr heilsutjóni og dauðsföllum af völdum Rósa Þorsteinsdóttirslysa. Sérstaklega hefur verið unnið að slysavörnum barna og unglinga. Verkefnið Árvekni-slysavarnir barna var fellt undir starfsemi Lýðheilsustöðvar árið 2003 en starfar ekki lengur undir því nafni heldur heyrir beint undir flokk slysavarna á Lýðheilsustöð.

Verkefnisstjóri: Rósa Þorsteinsdóttir.

Unnið er fræðsluefni um slysavarnir til notkunar í skólum, heilsugæslustöðvum, íþróttamannvirkjum og víðar.
Lýðheilsustöð er í samvinnu við erlendar og innlendar stofnanir og samtök á sviði slysavarna.

Slysavarnaráð fellur undir Lýðheilsustöð og starfar ráðið sem eitt af sérfræðiráðum stöðvarinnar.

Smella á mynd til að opna slysaskráMeð Lögum um Lýðheilsustöð segir í 8. gr. um slysavarnaráð:

Hlutverk slysavarnaráðs er að stuðla að fækkun slysa.

Ráðið skal sjá til þess að slys séu skráð með samræmdum hætti. Jafnframt skal ráðið hlutast til um úrvinnslu skráðra upplýsinga og birtingu þeirra. Ráðið mótar reglur um framkvæmd skráningar og aðgang að upplýsingum úr skránni.

Samræmd slysaskrá skal varðveitt hjá landlækni.

Ráðherra skal setja reglugerð þar sem kveðið er á um skipan ráðsins og starfsemi þess.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica