Sími : 5 800 900
Forvarnasjóður

Forvarnasjóður

Tilgangur Forvarnasjóðs er að stuðla að forvörnum gegn áfengis- og vímuefnaneyslu. Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á sviði áfengis- og vímuvarna í samræmi við stefnu og forgangsröðun ríkisstjórnarinnar í áfengis- og vímuvörnum hverju sinni. Styrkir eru veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Einstaklingum eru að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsóknaverkefna.

Um Forvarnasjóð 

Forvarnasjóður var skilgreindur í lögum um gjald af Forvarnarsjodur-Auglysing_2010_300áfengi árið 1995 og árið 1996 var í fyrsta skipti úthlutað styrkjum úr honum. Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum einu sinni á ári. Leitast er við að auglýsa snemma árs og að úthlutun sé lokið fyrir mitt ár.

Félög, samtök og opinberir aðilar eiga kost á styrkjum. Einstaklingum eru að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsóknarverkefna. Einungis er tekið við umsóknum sem skilað er á þar til gerðum rafrænum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á vef Lýðheilsustöðvar (hér á vinstri spássíu).

Sjá auglýsingu um styrk úr Forvarnasjóði 2010 hérna til hægri.

Reglugerð um Forvarnasjóð

Áherslur Lýðheilsustöðvar vegna úthlutunar úr Forvarnasjóði árið 2010

  • Lögð er áhersla á að verkefnin séu samstarfsverkefni og að þau tengist börnum og ungmennum í eða utan skóla.
  • Í  ár verða umsóknir sérstaklega metnar með tilliti til stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla heilsugæsluna og lýðheilsustarf og forvarnir á þeim grunni. 
  • Mikilvægt er að um sé að ræða stærri, umfangsmeiri og markvissari verkefni sem hægt er að fylgjast náið með hvað framkvæmd og framvindu varðar.
  • Mikilvægt er að í umsókninni sé gerð grein fyrir því hvernig hægt sé að meta árangur verkefnisins.
Heilbrigðisráðherra úthlutar úr sjóðnum að fengnum tillögum áfengis- og vímuvarnaráðs sem metur umsóknirnar í samstarfi við Lýðheilsustöð. Styrkveitendur áskilja sér rétt til að skilyrða styrkveitingar og ákveða að styrkir verði greiddir út í samræmi við framvindu verkefnis.
Sé sótt um styrk til framhaldsverkefna þarf framvinduskýrsla að liggja fyrir.

Umsóknir

Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2010

  • I Forvarnasjóður - Umsókn til verkefna
  • II Forvarnasjóður - Umsókn um rannsóknarstyrk

Mikilvægt er að í umsókninni sé gerð grein fyrir því hvernig verkefnið verður metið.

Þeir sem fá styrki greidda út í tveimur hlutum þurfa að skila inn stöðuskýrslu/framvinduskýrslu. Slíkri skýrslu þarf að skila áður en seinni hluti styrkja fæst greiddur.

Lokaskýrslu þarf að skila fyrir öll verkefni sem er lokið.

Fyllið eyðublöð út og vistið hjá ykkur með því að fara í save as, sendið skjalið síðan sem viðhengi með tölvupósti til Lýðheilsustöðvar á netfangið: johann@lydheilsustod.is


Upplýsingar um úthlutanir og verkefni 1999-2009



Þetta vefsvæði byggir á Eplica