Sími : 5 800 900
Vinir Zippý

Vinir Zippý

vinir_Zippys_logo_stortVinir Zippý eða „Zippy's Friends“ verkefnið er alþjóðlegt forvarnar-verkefni á sviði geðheilsu fyrir börn sem Lýðheilsustöð hleypti af stokkunum árið 2005. Um er að ræða námsefni ætlað 6-7 ára börnum sem notað hefur verið með góðum árangri víða um heim.

Grundvallarhugmyndafræðin á bak við Vinir Zippýs er einföld:
Ef hægt er að kenna ungum börnum að takast á við erfiðleika þá ættu þau að vera betur í stakk búin að takast á við vandamál og erfiðleika sem þau standa frammi fyrir á unglingsárunum og síðar á lífsleiðinni. Börnunum er kennt að ráða fram úr erfiðleikum sem þau mæta í daglegu lífi, að bera kennsl á og tala um tilfinningar sem þau bera í brjósti og kanna færar leiðir til að kljást við tilfinningar sínar. Námsefnið er ekki síður samið með það fyrir augum að hvetja börn til þess að aðstoða aðra sem eiga við vanda að stríða.

Nánar um námsefnið Vinir Zippýs:

Kynningarbæklingur um námsefnið

Hugmyndafræði námsefnisins

Að geta bjargað sér

Deildu með öðrum


Fréttir

Vinir Zippýs í fleiri löndum

Vinir Zippýs nær víðari útbreiðslu í Suður-Ameríku, og námsefnið verður von bráðar kennt í Argentínu, Mexíkó og Panama.
Nánar má lesa um það í yfirliti Partnership for Children fyrir 2009-2010 (PDF-skjal á ensku).

Lesa meira
 

Fréttabréf

Fréttabréf um starfsemi og framgang verkefnisins Vinir Zippý eru reglulega gefin út af Partnership for Children. Í nýjasta fréttabréfinu má lesa um ítarlega rannsókn um útbreiðslu námsefnisins á Írlandi og góða útkomu af kennslunni.

Fréttabréfið (á ensku) má nálgast hér.

Lesa meira
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica