Hreyfing
Hnapparnir til vinstri vísa beint á ýmislegt sem tengist hreyfingu. Fliparnir fyrir ofan gera það einnig en vísa jafnframt á aðra málaflokka sem heyra undir Lýðheilsustöð.
Verkefnisstjóri: Gígja Gunnarsdóttir
Starfsemi Lýðheilsustöðvar á sviði hreyfingar skiptist í fræðslu, ráðgjöf, heilsueflingarverkefni og rannsóknir.
Meginmarkmið starfsins er að stuðla að því að sem flestir landsmenn, á öllum aldri, stundi reglulega hreyfingu sér til ánægju og heilsubótar. Það er gert með því að horfa til þeirra fjölmörgu þátta sem hafa áhrif á hreyfingu. Áhersla er á náið samstarf við þá hagsmunaaðila sem viðfangsefnið varðar hverju sinni, s.s. sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, skóla og félagasamtök.
Lýðheilsustöð er faglegur ráðgjafi stjórnvalda og birtir ráðleggingar um hreyfingu þar sem tekið er mið af ráðleggingum erlendra og innlendra fagstofnana.
Í maí 2008 kom út bæklingur með ítarlegum ráðleggingum um hreyfingu.
Veldu hnappinn „Hreyfiráðleggingar“ vinstra megin á síðunni til að lesa bæklinginn og grunn-ráðleggingar.
