Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

LÝÐHEILSUSTÖÐ

Lýðheilsustöð tók til starfa 1. júlí 2003, samkvæmt lögum nr. 18/2003. Lýðheilsustöð tilheyrir heilbrigðiskerfi landsins og fellur undir stjórn heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis.

Með starfsemi sinni er Lýðheilsustöð ætlað að efla og samræma lýðheilsustarf í landinu, efla kennslu ogLýðheilsustöð, veggspjald 2006. Smella á mynd til að stækka. rannsóknir á sviði lýðheilsu, vinna að lýðheilsuverkefnum á eigin vegum og í samvinnu við aðra sem og að byggja upp þekkingasetur allra landsmanna, fagfólks jafnt sem almennings, á þessu sviði.
Lýðheilsustöð er stjórnvöldum til ráðgjafar um stefnumótun á sviði lýðheilsu, tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi og er í tengslum við aðra sem starfa á sviði lýðheilsu.

Lýðheilsa

Lýðheilsa er hugtak yfir almennt heilsufar þjóðar eða þjóðfélagshóps. Lýðheilsustarf miðar að því að viðhalda og efla heilbrigði fólks, með forvarnarstarfi og samfélagslegri ábyrgð á heilbrigði. Starfið byggir á samstarfi ólíkra fræðigreina og tekur m.a. til efnahagslegra og félagslegra áhrifaþátta.

Einkennismerki Lýðheilsustöðvar

Einkennismerki Lýðheilsustöðvar sýnir það persónu snúa sér í hring. Merkið á að tákna frelsi hvers og eins til að ná valdi á umhverfi sínu og þeim þáttum sem hafa áhrif á eigin heilbrigði.Merki Lýðheilsustöðvar. smellið á myndina til að stækka.


Skipurit Lýðheilsustöðvar

Skipurit_2007, smella á mynd til að stækka.
Frá stofnun Lýðheilsustöðvar hafa áfengis- og vímuvarnaráð, manneldisráð, slysavarnaráð og tóbaksvarnaráð tilheyrt stöðinni en frá áramótum 2003/2004 bættust við Árvekni og tannverndarsjóður - og síðar verkefnin Geðrækt, Allt hefur áhrif - einkum við sjálf , hreyfing og skólafæðsla. Unnið er sams konar verkefnum og unnin voru vegum fyrri ráða og stofnana en einnig mörgum nýjum. Helsti ávinningurinn er að nú er á einum stað unnið sameiginlega að forvörnum á þessum sviðum.

Starfsfólk Lýðheilsustöðvar

Starfsfólk Lýðheilsustöðvar getur veitt nánari upplýsingar um málaflokka og starfsemi stöðvarinnar.
Forstjóri er Margrét Björnsdóttir, sviðsstjóri rannsóknasviðs er Stefán Hrafn Jónsson, sviðsstjóri samskipta- og fræðslusviðs er Bryndís Kristjánsdóttir og skrifstofustjóri er Jóhann Þór Halldórsson

Gildi starfsmanna Lýðheilsustöðvar Hagsmunaaðilar Lýðheilsustöðvar
Gildi starfsmanna. smellið á mynd til að stækka. Lýðheilsustöð, hagsmunaðilar. smellið á myndina til að stækka.
Hluti af skorkorti Lýðheilsustöðvar

Útgáfur sem kynna starfsemina






Þetta vefsvæði byggir á Eplica