Sími : 5 800 900
Skólafræðsla

Fræðsla og forvarnir í skólum

Innan Lýðheilsustöðvar er lögð áhersla á góða samvinnu við skólasamfélagið. Markmiðið er að stuðla að auknu og markvissu forvarna- og heilsueflingarstarfi í leik-, grunn- og framhaldskólum. Markmiðið með slíku starfi er að efla sjálfsvitund og sjálfstraust nemenda þannig að þeir tileinki sér lifnaðarhætti sem stuðli að andlegri og líkamlegri vellíðan, s.s. að velja hollan mat, stunda reglulega hreyfingu og útivist, hafna tóbaki, áfengi og öðrum vímuefnum.

Verkefnisstjórar:

Héðinn Björnsson Sveinbjörn Kristjánsson

Verkefnisstjóri
framhaldsskólafræðslu

Héðinn Björnsson

Verkefnisstjóri
grunnskólafræðslu

Sveinbjörn Kristjánsson

Unnið er að skólafræðslunni í samstarfi við marga og áhersla lögð á að styrkja enn frekar samstarfið við skóla á öllum skólastigum. Vorið 2008 var haldin fyrsta „skóli og lýðheilsa“ ráðstefnan og stefnt er að því að hún verði árlegur viðburður.

Sérstök grunnskólaverkefni

6 H heilsunnar er samstarfsverkefni Lýðheilsustöðvar og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins-skólahjúkrun.

Vinir Zippýs er alþjóðlegt fræðsluefni um geðrækt, sem ætlað ungum nemendum, og Lýðheilsustöð hefur látið þýða, staðfæra og prenta.

Göngum í skólann er alþjóðlegt verkefni sem Lýðheilsustöð stóð fyrir að tekið væri upp á Íslandi. Þar eru nemendur, foreldrar og starfsmenn skóla eru hvattir til að ganga í skólann. Frá árinu 2008 hefur ÍSÍ umsjón með verkefninu.

Samtök heilsuskóla í Evrópu

Smella á mynd til að opna heimasíðu. Lýðheilsustöð vinnur í samræmi við viðmiðunarreglur frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni um heilsueflingu og forvarnir fyrir skóla. Þar er lögð áhersla á að þróa aðgerðir sem kenna ekki aðeins staðreyndir um heilsusamlega lifnaðarhætti, heldur einnig færni til að framkvæma. Eins er áhersla á umhverfis- og félagslega þætti og tengsl við grenndarsamfélagið. Lýðheilsustöð er meðlimur í Samtökum heilsuskóla í Evrópu (Schools for Health in Europe).Fréttabréf Samtaka heilsuskóla í Evrópu. smellið á mynd til að lesa blaðið.
http://www.schoolsforhealth.nl

ENHPS

Framhaldsskólinn

Lýðheilsustöð, heilbrigðis- og menntamálaráðuneytið ásamt samtökum framhaldsskólanema undirrituðu í nóvember 2007 samstarfssamning til 3ja ára um forvarna- og heilsueflingarstarf í framhaldsskólum.

Leiðir að skólafræðsluefni á vefsíðu Lýðheilsustöðvar

Hnapparnir til vinstri vísa beint á ýmislegt sem nýst getur við skólafræðslu. Fliparnir fyrir ofan gera það einnig en vísa jafnframt á aðra málaflokka sem heyra undir Lýðheilsustöð. Hægra megin er hægt að nálgast ýmsar tillögur og hugmyndir að efni sem nýst getur í fræðslu- og forvarnarstarfi í skólum.

Athugið að með því að smella á táknmyndina „Mínar stillingar“ hér fyrir ofan hægri dálkinn þá gefst fólki möguleiki á breyta stillingum vefsíðunnar að eigin þörfum, s.s. vegna blindu, sjóndepru eða lesblindu.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica