Tannvernd
Starfsemi Lýðheilsustöðvar á sviði tannverndar skiptist í fræðslu, ráðgjöf og rannsóknir. Lýðheilsustöð vinnur fræðsluefni um tannvernd fyrir börn, fullorðna og aldraða til notkunar í skólum, heilsugæslu og landsmenn almennt.
Tannverndarvika er haldin árlega fyrstu vikuna í febrúar.
| Starfsmenn tannverndar | |
|---|---|
YfirverkefnisstjóriHólmfríður Guðmundsdóttir |
VerkefnisstjóriJóhanna Laufey Ólafsd. |
Lýðheilsustöð tekur þátt í framkvæmd faraldsfræðilegrar rannsóknar á munnheilsu Íslendinga/The Icelandic Oral Health Survey (MUNNÍS). Lokið er framkvæmd við fyrsta áfanga og í kjölfarið verður unnt að leggja mat á hvort þróun tannheilsumála hjá íslenskum börnum og unglingum er í samræmi við markmið heilbrigðisáætlunar, en meðal forgangsverkefna í heilbrigðisáætlun til ársins 2010 er bætt munnheilsa landsmanna.
Tannverndarráð
Lýðheilsustöð er faglegur ráðgjafi stjórnvalda um tannverndarmál. Öll starfsemi sem áður féll undir Tannverndarráð og hluti starfssemi Miðstöðvar tannverndar fellur nú undir Lýðheilsustöð. Tannverndarráð starfar áfram sem fagráð og ráðgjafi fyrir þennan málaflokk hjá Lýðheilsustöð.
Hnapparnir í hliðardálkunum vísa beint á ýmislegt tannverndarefni. Fliparnir fyrir ofan gera það einnig en vísa jafnframt á aðra málaflokka sem heyra undir Lýðheilsustöð.

Yfirverkefnisstjóri
Verkefnisstjóri