Sími : 5 800 900
Tannverndarvika

Tannverndarvikan

Mikið hefur áunnist í tannverndarmálum og með góðri munnhirðu og hollu mataræði leggjum við grunninn að góðri tannheilsu. Fyrsta vikan í febrúar ár hvert er tileinkuð tannvernd og þá eru landsmenn minntir á mikilvægi þess að búa við góða tannheilsu allt lífið, m.a. er þetta gert í góðu samstarfi við leik- og grunnskóla.

2010

Tannverndarvika, 2010. Smellið á mynd til að stækkaHin árlega tannverndarvika, sem Lýðheilsustöð stendur fyrir, er dagana 1.- 5. febrúar. Að þessu sinni er athyglinni beint sérstaklega að tannvernd barna. Nýtt, lifandi fræðsluefni hefur verið útbúið, einkum ætlað foreldrum og öðrum sem sinna tannvernd og tannhirðu barna. Að auki er á ýmsan annan hátt vakin athygli á mikilvægi tannverndar og góðrar tannhirðu, s.s. með miðlun upplýsinga og fræðslu til foreldra, allra skóla, heilsugæslu, tannlækna og fleiri.

Skoða lifandi fræðsluefni

2009

Tannverndarvikan 2009 hefst 1. febrúar og í þeirri viku er athyglinni beint að mikilvægi daglegrar notkunar tannþráðar í góðri munnhirðu og eru landsmenn hvattir til að „taka upp þráðinn“. Í tilefni af tannverndarvikunni var gert stutt myndband þar sem á lifandi hátt eru kennd handbrögðin við notkun tannþráðar, ennfremur útbúið efni um tannþráð til dreifingar í skólum landsins og á vefsíðu Lýðheilsustöðvar var gerð sérstök fræðslusíða um tannþráð.

2008

Munnhirða fólks með sérþarfir - framhlið DVD Í tilefni af tannverndarviku 2008 var frumsýnd fræðslumynd um munnhirðu fólks með sérþarfir sem Lýðheilsustöð og Heilsugæsla höfuborgarsvæðis/Miðstöð tannverndar létu gera undir umsjón Hólmfríðar Guðmundsdóttur, tannlæknis. Myndin hefur verið gefin út á margmiðlunardiski sem dreift var um land allt, auk þess sem hægt er að panta hann hjá Lýðheilsustöð.

2007

Drekkum vatn, skilti„Drekkum vatn“ var þema tannverndarvikunnar það árið til að minna á að vatn er besti svaladrykkurinn. Niðurstöður landsrannsóknar á tannheilsu íslenskra barna og ungmenna á aldrinum 6, 12 og 15 ára sýndi að tannheilsuvandi er mikill hjá þessum hópi og glerungseyðing vaxandi því hún mælist nú í einhverri tönn hjá 30% 15 ára unglinga. Ein aðalorsök glerungseyðingar er mikil og tíð neysla gosdrykkja – með eða án sykurs – en neysla slíkra drykkja er mjög mikil hér á landi. Vatn, ferskt og kolsýrt (óvítamínbætt), veldur ekki glerungseyðingu.
Nánar um tannverndarvikuna 2007

2006

tannburstajaxlÍ tannverndarvikunni árið 2006 voru frumsýndar nýjar auglýsingar þar sem kynntur var til sögunnar „Jaxlinn“; teiknimyndapersóna kemur á skemmtilegan og lifandi hátt til skila heilræðum um tannhirðu. Einnig var athygli vakin á tveimur stuttar hreyfimyndum sem sýna vel hvernig beita á tannbursta og tannþræði.
Nánar um tannverndarvikuna 2006

2005

Tannverndarvikan árið 2005 var helguð umfjöllun um tannheilsu og tóbak. Langvarandi reykingar eða notkun á munntóbaki getur haft mikil áhrif á munnheilsu hvers og eins. Aukin hætta er á ýmsum munnsjúkdómum og tennurnar litast gular. Einnig er í munntóbaki sætuefni sem geta valdið tannskemmdum og ertandi efni sem geta valdið óafturkræfum skemmdum á tannholdi og slímhúð.

2004

Þema tannverndarvikunnar var að þessu sinni skyndihjálp vegna tannáverka.
Af því tilefni gáfu Tannverndarráð og tannheilsudeild Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins út, í samstarfi við Ásgeir Sigurðsson tannlækni, Tannlæknafélag Íslands og Rauða Kross Íslands, veggspjald með leiðbeiningum varðandi skyndihjálp vegna áverka á fullorðinstennur sem dreift var m.a. til grunnskóla, íþróttamiðstöðva, sundstaða og heilsugæslustöðva.
Veggspjaldið (PDF)
Sambærilegar upplýsingar (PDF), ætlaðar efsta stigi grunnskóla og framhaldsskólum (2008)

Grein eftir Ólaf Höskuldsson barnatannlækni, birt í Morgunblaðinu þann 5. febrúar 2004, í tengslum við þeima tannverndarvikunnar.
Pistill eftir Ásgeir Sigurðsson tannlækni og sérfræðing í tannholsfræðum. Birt í Morgunblaðinu - Daglegt líf á vegum Landlæknisembættisins.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica