Ýtarefni
Áfengissala á Íslandi 1985-2006 - Lítrar af hreinum vínanda á hvern íbúa 15 ára og eldri
Áfengissala er gjarnan notuð sem mælikvarði á heildaráfengisneyslu þjóðar og breytingar á henni. Hún gefur einnig vísbendingar um samband milli breytinga á heildarneyslu og hugsanlegrar áfengismisnotkunar sem hefur ýmis skaðleg áhrif í för með sér (sbr. Alþjóðaheilbrigðisstofnun, 2006).
Hagstofa Íslands sér um skráningu á áfengissölu hér á landi. Mynd 1.1 sýnir hvernig sala á gjaldskyldu áfengi hefur þróast á Íslandi síðustu árin. Þessar tölur taka hinsvegar ekki tillit til þess áfengis sem flutt er inn í gegnum fríhafnir né heimabruggs eða smygls (sjá mynd 1.3).
- Almennt er miðað við 15 ára aldur þar sem slík viðmiðun tíðkast í samanburði á milli landa.
- Sala sterks bjórs hófst 1. mars 1989.
- Skráning á sölu gosblandaðra drykkja hófst árið 2000.
- Frá og með 1. desember 1995 var einkaréttur ÁTVR til innflutnings áfengis og sölu til endurseljenda afnuminn og innflytjendum, framleiðendum og heildsölum, sem höfðu til þess sérstakt leyfi, heimiluð sala til endurseljenda.
- Frá árinu 1995 ná tölur yfir sölu ÁTVR og annarra leyfishafa. Ekki er meðtalið það áfengi sem ferðamenn eða áhafnir skipa og flugvéla flytja með sér inn í landið (nema þegar annað er tekið fram).
Áfengissala á Íslandi 1985-2006 mæld í lítrum af hreinum vínanda á hvern íbúa 15 ára og eldri.
Smelltu á mynd til að stækka.
Heimild: Hagstofa Íslands (2007)

