Sími : 5 800 900
Heilsa og líðan

Heilsa og líðan Íslendinga

 HL09

Lýðheilsustöð stendur að rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga sem er viðamikil spurningalistakönnun á heilsu, líðan og velferð fullorðinna Íslendinga. Rannsóknin er unnin í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands, Landlæknisembættið, Landspítalann og Vinnueftirlitið, auk sérfræðinga hjá Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Háskólanum í Reykjavík. Rannsóknin hefur verið samþykkt af Vísindasiðanefnd.

Á nýju ári verður áfram tekið á móti svörum þátttakenda í framhaldsrannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga 2009

Rannsóknin hefur hlotið góðar viðtökur þátttakenda og nú í árslok 2009 hefur stór hluti þeirra skilað inn svörum.

 

Hafi þátttakendur einhverjar spurningar þá er leitast við að svara þeim á síðu fyrir þátttakendur og þar er netfang sem hægt er að nota til að senda spurningar til umsjónaraðila rannsóknarinnar.

Heilsa og líðan Íslendinga 2009

Spurningalistakönnunin var fyrst lögð fyrir í október 2007 og var hugsuð sem grunnur að reglubundnum mælingum á heilsu, líðan og lífsgæðum fólks á Íslandi og á helstu áhrifaþáttum heilbrigðis, þ.e. lífsháttum, aðstæðum og lífsskilyrðum. Þá voru sendir út spurningalistar til 9807 manna tilviljunarúrtaks Íslendinga á aldrinum 18-79 ára og var svarhlutfall rúm 60%. Af þeim sem svöruðu könnuninni samþykktu flestir að taka þátt í framhaldsrannsókn að 4–6 árum liðnum með það að markmiði að kanna breytingar á heilsu og líðan Íslendinga.

Í ljósi breyttra aðstæðna í íslensku samfélagi, í kjölfar bankahrunsins haustið 2008, var ákveðið að fara af stað með framhaldsrannsóknina síðla árs 2009, þ.e. fyrr en áætlað var. Þátttakendur eru allir þeir sem tóku þátt í könnuninni árið 2007 og samþykktu jafnframt með undirskrift að taka þátt í framhaldsrannsókn. Megin markmið framhaldsrannsóknarinnar er að mæla breytingar á lífsháttum, félagslegri stöðu, heilsu og líðan fólks ári fyrir og ári eftir upphaf efnahagsþrenginganna í október 2008.

Heilsa og líðan Íslendinga 2007

Lýðheilsustöð stóð seinni hluta ársins 2007 fyrir viðamikilli könnun á heilsu, líðan og velferð ÍslendHeilsa og líðan Íslendinga 2007, spurningalisti. Smellið á mynd til að skoða listann. inga á aldrinum 18-79 ára. Þátttakendur eru 10.000 manns valdir með tilviljun. Könnunin var unnin í samstarfi við Landlæknisembættið, Vinnueftirlitið, Krabbameinsfélag Íslands og sérfræðinga frá Kennaraháskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Akureyri.

Um könnunina 2007

Spurningalistann sem lagður var fyrir þátttakendur könnunarinnar má nálgast með því að smella á tengilinn eða myndina af forsíðu könnunarinnar.

Kynning á fyrstu niðurstöðum

Kynning á fyrstu niðurstöðum fór fram 13. maí 2008 og var þar tekið fyrir ,,sól og sólbruni".

- sjá frétt
- glærur frá kynningunni

Aðgengi að rannsóknagögnum Heilsa og líðan Íslendinga

Hluti af hugmyndafræði könnunarinnar „Heilsa og líðan Íslendinga 2007” er að auka aðgengi fræðimanna á að góðum rannsóknargögnum. Þetta er meðal þess sem kom fram á kynningu sem fram fór þriðjudaginn 13. maí 2008. Til að tryggja sanngjarna og ábyrga notkun gagnanna þá hafa verið sett fram viðmið þegar sótt er um aðgang að gögnunum.

Afnot af gögnum rannsóknarinnar:

Gögnin eru aðgengileg aðstandendum rannsóknarinnar í skrifum á fræðigreinum, fyrir innra starf þeirra stofnana sem þeir vinna hjá og fyrir samstarfsverkefni með öðrum fræðimönnum og stofnunum. Breytan um póstnúmer er undanþegin og hefur stjórnandi rannsóknarinnar einn aðgang að þeirri breytu nema Vísindasiðanefnd heimili öðrum úrvinnslu sem byggir á póstnúmeri.

Aðgangur annarra fræðimanna að gögnum rannsóknarinnar er opinn með eftirfarandi skilyrðum.

  1. Að Vísindasiðanefnd heimili úrvinnslu annarra aðila en voru á upphaflegri umsókn og leyfi frá nefndinni.
  2. Að fræðimaður sýni fram á fullnægjandi rannsóknarreynslu og ábyrga notkun rannsóknargagna. Sé um að ræða nemanda þá skal leiðbeinandi sýna fram á rannsóknarreynslu og ábyrga notkun gagna.
  3. Fræðimaður tilgreini hverjir fjármagni tiltekin rannsóknarverkefni beint og óbeint.

Stjórnandi rannsóknarinnar áskilur sér rétt til að hafna umsóknum um afnot af gögnum t.d. ef tóbaksfyrirtæki, áfengisfyritæki eða lyfjafyrirtæki fjármagna eða styðja rannsóknarverkefni að hluta til eða í heild.

Viðmið um notkun á gögnum á Heilsa og líðan Íslendinga 2007 er að finna hér.

Rannsóknarverkefni byggð á gögnum Heilsu og líðan Íslendinga 2007






Þetta vefsvæði byggir á Eplica