Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar Heilsa og lífskjör skólanema, sem gerð var á meðal 11.800 skólanema í 6., 8. og 10. bekk grunnskóla í febrúar og mars sl., voru kynntar á Hótel KEA á Akureyri 25. apríl. Viðfangsefni rannsóknarinnar eru víðtæk en spurt er um lífstíl, næringu, matmálstíma, hreyfingu, tómstundir, slys, tannhirðu, líðan, félagsleg tengsl og umhverfi nemenda auk þess sem spurt er um ýmsa áhættuhegðun.
Lesa meira