Sími : 5 800 900
Heilsa og líðan skólanema

Fjölþjóðlegar niðurstöður HBSC kynntar

Niðurstöður fjölþjóðlegu rannsóknarinnar HBSC - Heilsa og lífskjör skólanema - voru kynntar með viðhöfn á Akureyri 18. júní. Niðurstöðurnar sýna stöðu íslenskra nemenda í samanburði við jafnaldra sína í þátttökulöndunum.

Spurningalistar HBSC-rannsóknarinnar á Íslandi voru lagðir fyrir árið 2006 í 166 grunnskólum landsins. Íslensku niðurstöðurnar voru svo kynntar í apríl 2006. Nú, rúmum tveimur árum síðar, eru niðurstöður fyrir fjölþjóðlegan samanburð öllum aðgengilegar.

Hægt er að sækja skýrsluna á vefsíðu HBSC.

Kynninguna á niðurstöðunum á Akureyri er hægt að nálgast með því að smella á tengilinn.

Þakkir til starfsmanna og nemenda skólanna

Aðstandendur rannsóknarinnar, Lýðheilsustöð og Háskólinn á Akureyri, þakka starfsmönnum og um 11.800 nemendum íslenskra grunnskóla fyrir að leggja rannsókninni lið. Starfsmenn Lýðheilsustöðvar tóku virkan þátt í undirbúningi, framkvæmd og úrvinnslu íslenska hluta rannsóknarinnar auk þess sem Lýðheilsustöð fjármagnaði hana að stórum hluta.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica