Sími : 5 800 900
Þekkingartorg

Þekkingartorg á heilbrigðissviði

Verkefni og gögn frá Lýðheilsustöð

Þekkingartorg á heilbrigðissviði er aðgangsstýrt netsvæði. Þekkingartorgið samanstendur af verkefna- og upplýsingamiðlun og er markmið reksturs þess þríþætt. Torginu er ætlað að tengja sérfræðinga saman í gegnum vefstýrða verkefnamiðlun. Með þeim hætti geta t.d. stofnanir miðlað verkefnum og kallað eftir þekkingu til að leysa þau og háskóladeildir fengið verkefni fyrir nema og/eða starfsmenn sína. Einnig er torginu ætlað að byggja upp upplýsingamiðlun um heilbrigðistengd gögn sem til eru á Íslandi og aðgengi að þeim. Að lokum mun torgið vera umræðuvettvangur þar sem hægt er að ræða íslensk heilbrigðismál og koma málefnum og rannsóknum á framfæri er varða heilbrigðismál og stefnumótun á heilbrigðissviði.

Lýðheilsustöð birtiir á þessum síðum upplýsingar um þau gögn sem stofnunin hefur yfir að ráða og hugmyndir af verkefnum sem uppi eru.

 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica