Vefsvæði Lýðheilsustöðvar
Með starfsemi sinni er Lýðheilsustöð ætlað að efla og samræma lýðheilsustarf í landinu, efla kennslu og rannsóknir á sviði lýðheilsu, vinna að lýðheilsuverkefnum á eigin vegum og í samvinnu við aðra sem og að byggja upp þekkingasetur allra landsmanna, fagfólks jafnt sem almennings, á þessu sviði.
Lýðheilsustöð er stjórnvöldum til ráðgjafar um stefnumótun á sviði lýðheilsu, tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi og er í tengslum við aðra sem starfa á sviði lýðheilsu.
Öllum er heimilt að nýta sér efni vefsins ef heimildar er getið. Sé óskað nánari upplýsinga um mál, málaflokka, starfsemi eða annað er hægt að senda póst á starfsmann viðkomandi málaflokks eða hringja í síma 5 800 900 og ræða málið við viðkomandi starfsmann.
