Kynlíf

Kynlíf

Kynlíf og hegðun því tengd er ansi áberandi í flestum fjölmiðlum og á Netinu - ekki síst á þeim stöðum sem beinast að ungu fólki - og sú mynd sem þar er sýnd er oftar en ekki þannig að hún brenglar mynd ungs fólks af kynlífi. Vekur líka upp spurningar eins og t.d.: Er allt leyfilegt - eins og ætla mætti af sumum þessara mynda? Er allt eðlilegt? Hvað með tilfinningar - skipta þær engu máli?

Til að svara þessum og mörgum fleiri spurningum var ákveðið árið 2006 að gefa út fræðslubækling um ungt fólk og kynlíf þar sem höfundarnir lögðu sig fram um að finna svör og fræðsluefni um allt það helsta sem snertir ungt fólk og kynlíf.

Einnig gáfu höfundarnir út bækling fyrir foreldra og snýst hann um það hvernig foreldrar geti rætt við börn sín um kynlíf.

Vissir þú að:

- Líkami þinn er einstakur
- Typpi eru í öllum stærðum og gerðum; stutt og löng, þykk og skökk, lítil og stór
- Brjóst eru líka misstór, lítil og stór, næm og ekki næm
- Snípur og skapabarmar geta verið af ýmsum stærðum og gerðum
- Blæðingar geta byrjað fyrir fermingaraldur eða á framhaldsskólaaldri
- Kynlíf er miklu meira en samfarir
- Kynlíf er betra þegar maður er tilbúin(n) til þess og verður betra og betra...

Staðreyndir á Íslandi:

- Það smitast um 5 einstaklingar af klamydíu á dag, flestir á aldrinum 15-25 ára.
- Sumir kynsjúkdómar fylgja þér alla ævi.
- Það smitast tæplega einn í mánuði af HIV/alnæmi og það er engin lækning í augsýn. Flestir sem greinast með smit eru 25-29 ára.
- Það fara tæplega 4 stúlkur á aldrinum 19 ára og yngri í fóstureyðingu í hverri viku, og næstum því jafn margar á sama aldri eignast börn í hverri viku.

Kynlíf - unglingar

Unglingabæklingur-munnurFræðslubæklingur fyrir unglinga sem nefnist Kynlíf – unglingar. Í honum er meðal annars skrifað um rétt unglinga í kynlífi, bjartar og dökkar hliðar kynlífs og hvert hægt sé að leita til að fá upplýsingar um kynlíf.

Að útgáfunni standa Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir (FKB), Lýðheilsustöð, Forvarnarnefnd Reykjavíkurborgar og Landlæknisembættið.

Skoða bækling (PDF-skjal, opnast í nýjum glugga)

Kynferðisofbeldi

Á síðunni Ungt fólk til ábyrgðar er fjallað um heilbrigð sambönd fólks en líka það sem getur farið úrskeiðis, t.d. kynferðisofbeldi.

Tenglar

Ýmsir aðilar og stofnanir veita ráð og aðstoð í sambandi við kynlíf. Hér er sagt frá þeim helstu og tenging í vefsíður þeirra.





Laugavgi 116 - 105 Reykjavík - S:5 800 900

Þetta vefsvæði byggir á Eplica