Styrktarsjóður

Styrktarsjóður Lýðheilsustöðvar fyrir ungt fólk án atvinnu sumarið 2009

Unglingar_a_Ingolfstorgi_-_HSBLýðheilsustöð styrkir í sumar ungt atvinnulaust fólk til að vinna að verkefnum sem hafa heilsueflingu og/eða forvarnir að markmiði og stuðla að tóbaksleysi. Til ráðstöfunar verða 5 milljónir króna en miðað er við að einstaklingar geti fengið 50.000 kr. styrk til að vinna verkefni sem stendur yfir í 2 vikur í sumar og að hámarki 150.0000 kr. fyrir verkefni sem stendur yfir í 6 vikur.

NÆSTI UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 23. JÚLÍ.

Styrkþegar ásamt Viðari Jenssyni, verkefnisstjóra tóbaksvarna, og Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur, setts forstjóra Lýðheilsustöðvar.

Fyrsta verkefnið sem hlýtur stuðning úr sjóðnum kallast Djammreykingar eru líka slæmar en að því standa Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, Blædís Klara Baldursdóttir, Iðunn Ýr Halldórsdóttir, Sigríður María Lárusdóttir og Unnur Sara Eldjárn.

Verkefnishöfundar ætla að vinna að því í 6 vikur í sumar að gera stuttmynd sem sýnir m.a. hvernig fólk byrjar að reykja og „djammreykingar“, form á reykingum sem töluvert er um en hefur ekki verið mikið fjallað um til þessa. Þegar lokið hefur verið við myndina í sumar ætla höfundar að bjóða grunn- og framhaldsskólum að nýta sér hana, t.d. í lífsleiknitímum. (Sjá frétt um úthlutunina).

Fyrir hverja eru styrkirnir?

Styrkirnir eru ætlaðir ungu fólki sem fætt er á árunum 1989-1992 og skilyrði er að umsækjendur noti ekki tóbak. Styrkir eru veittir til ýmiss konar verkefna þar sem unnið er að heilsueflingu eða forvörnum og stuðla að tóbaksleysi. Umsækjendur vinna að verkefninu í sumar og fá greiddan styrk eftir framvindu verksins. Nokkrir geta unnið saman að einu verkefni (hámark 5 saman).

Skilyrði

Styrkhæf verkefni þurfa að stuðla að heilsueflingu eða hafa forvarnagildi og innihalda skilaboð tengd tóbaksvörnum. Skilyrði fyrir styrkveitingu eru að umsækjandi

  • sé fæddur á tímabilinu 1989-1992
  • sé án atvinnu þann tíma sem hann vinnur að verkefninu
  • noti ekki tóbak, né aðrir þátttakendur í verkefninu

(Sjá hugmyndir að hugsanlegum verkefnum hér neðar á síðunni).

Umsókn

Umsóknareyðublað. Smellið á myndina til að opna skjalið.Hér er rafrænt umsóknareyðublað sem fylla þarf út og senda í síðasta lagi 23. júlí 2009.

Ef nokkrir ætla að vinna saman að verkefni - hámarkið eru 5 einstaklingar saman í einu verkefni - þá sendir einn umsóknina í sínu nafni en nöfn hinna koma fram á umsókninni (liður 2).

Svar um hvort verkefnið hlýtur styrk eða ekki mun berast í tölvupósti og þá er beðið um bankaupplýsingar umsækjanda.

Ef fleiri en einn starfa að sama verkefni þá þurfa allir að senda sínar bankaupplýsingar, því hver og einn þátttakandi fær styrkinn greiddan inn á sinn reikning.

Framvinduskýrsla

FRAMVINDUSKYRSLA,_smellið á myndina til að opna eyðublaðiðHver einstaklingur þarf að fylla út framvinduskýrslu verkefnisins til að fá styrk greiddan út. Ef verkefnið stendur einungis yfir í 2 vikur þá þarf bara að senda 1 skýrslu. Standi verkefnið yfir í fleiri vikur þá þarf að senda skýrslu á tveggja vikna fresti en greitt er fyrir verkefni sem standa yfir að hámarki 6 vikur.

Gert er ráð fyrir að umsækjendur fari að vinna að verkefninu um leið og þeir fá jákvætt svar við umsókn sinni.

Þó er gert ráð fyrir að einhverjir gætu þurft að byrja seinna en þá þarf að taka fram í hvaða lotu/-m eigi að vinna að verkefninu.

GREIÐSLA STYRKS FER FRAM FLJÓTLEGA EFTIR AÐ FRAMVINDUSKÝRSLA BERST.

Vinnulotur og skil á framvinduskýrslum eru eftirfarandi:

1. lota:
15.-26. júní.
2. lota:
29. júní -10. júlí
3. lota:
13.-24. júlí
4. lota:
27. júli -7. ágúst
5. lota:
10.-21. ágúst
FRAMVINDUSKYRSLA,_SMELLIÐ Á MYNDINA TIL AÐ OPNA EYÐUBLAÐ FRAMVINDUSKYRSLA,_SMELLIÐ TIL AÐ OPNA EYÐUBLAÐ FRAMVINDUSKYRSLA,_SMELLIÐ TIL AÐ OPNA EYÐUBLAÐ FRAMVINDUSKYRSLA,_SMELLIÐ TIL AÐ OPNA EYÐUBLAÐ FRAMVINDUSKYRSLA,_SMELLIÐ TIL AÐ OPNA SKÝRSLU
Skila skýrslu:
26. júní
Skila skýrslu:
10. júli
Skila skýrslu:
24. júlí
Skila skýrslu:
7. ágúst
Skila skýrslu:
21. ágúst


Hvernig verkefni?

Hægt er að vinna að tóbaksvörnum á margvíslegan hátt, t.d. með því að að hvetja til heilbrigðs lífstíls sem minnkar líkur á notkun tóbaks, benda með beinum hætti á skaðsemi tóbaks eða benda á þær leiðir sem í boði eru til að hætta að reykja.

Hér á vefsíðunni eru margs konar upplýsingar um heilbrigðan lífsstíl og tóbaksvarnir (sjá sérstaklega Sagt er satt er og Áhrif reykinga á líkamann). Einnig eru hér á hugmyndablaði nokkrar ábendingar frá verkefnastjórum tóbaksvarna.

Upplýsinga má leita hjá: vidar@lydheilsustod.is, bara@lydheilsustod.is og hedinn@lydheilsustod.is



Deildu með öðrum

Dreifðu um vefinn



Laugavgi 116 - 105 Reykjavík - S:5 800 900

Þetta vefsvæði byggir á Eplica