Hvað get ég gert?

Að hætta að reykja

Hvernig er hægt að losna við tóbakið - eða hjálpa vini að losna við það?

Reiknivél. Smella á mynd til að reikna út kostnaðinn við tóbaksnotkun.Það er hvorki einfalt né auðvelt að losa sig við tóbakið, og það tekur tíma - en það er hægt.
Og maður græðir heilmikið á því að hætta: í fyrsta lagi betri heilsu strax - og svo á maður heilmikinn pening sem maður getur gert eitthvað betra við. Ef sígarettupakki kostar um 830 kr. (ág. 09) og maður hættir að reykja þá sparar maður næstum 6000 kr. á viku - eða 5.810. Og ef maður safnaði peningunum sem annars hefðu farið í sígarettukaupin þá ætti maður um 303.000 kr. eftir að hafa verið hættur í ár. Er ekki eitthvað sem þú gætir gert við þann pening?

Smelltu á myndina af reiknivélinni til að reikna út kostnað við reykingar ár ársvísu (gagnvirkt .pdf-skjal)

Aðstoð við að hætta

Ýmislegt er hægt að gera til að hjálpa sér að hætta - og yfirleitt tekst fleirum að hætta með aðstoð heldur en án hennar. Á þessari síðu eru ýmsar gagnlegar upplýsingar en sérstaklega er bent á gagnvirku vefsíðuna www.reyklaus.is

Hafirðu tekið þá ákvörðun að hætta að reykja / hætta annari tóbaksnotkun, þá gætu þessar upplýsingar hentað þér (PDF-skjal, 2 blöð. Opnast í nýjum glugga.)



Laugavgi 116 - 105 Reykjavík - S:5 800 900

Þetta vefsvæði byggir á Eplica