Hvað get ég gert?

Hvar fæ ég aðstoð?

Það er nokkuð sama hvert vandamálið er, þú ert sjaldnast ein/einn að berjast við það.

Í tenglasafninu vinstra megin ...

... má finna krækjur á vefsíður ýmisa samtaka og hópa sem sérhæfa sig m.a. í aðstoð vegna áfengis- og vímuefnaneyslu, sálrænna vandamála, þunglyndis, átröskunar, kynferðisofbeldis,
- hvort sem það ert þú sjálf/ur sem átt í erfiðleikum eða einhver sem þú þekkir.

Ungt fólk án atvinnu - sumarið 2009

Margir eru með sérstakar ráðstafanir og ýmis úrræði fyrir ungt fólk án atvinnu, hér eru nokkrir nefndir:

Styrktarsjóður Lýðheilsustöðvar fyrir ungt fólk. Umsóknarfrestur til 7. júní. http://www.lydheilsustod.is/ungt-folk/heilsa-og-lifsstill/styrktarsjodur/nr/2787

http://www.frumkvaedi.is/ Samfélagið Frumkvæði er samstarfs vettvangur Sambands Íslenskra Framhaldsskólanema, ÍTR, Hugmynda- og menntamálaráðuneytis.

http://www.lydheilsustod.is/greinar/greinasafn/nr/2759 Safnsíða með upplýsingum um flesta sem eru að vinna að úrræðum fyrir fólk án atvinnu.

Er lífið erfitt? Hringdu í 1717Er_lífið_erfitt?_Hringdu_í_1717

Hjálparsími Rauða krossins er gjaldfrjáls sími sem er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa aðstoð vegna depurðar, kvíða, þunglyndis, eða sjálfsvígshugsana.

Aðstoð við að hætta að reykja

reyklaus.isreyklaus.is er gagnvirk vefsíða þar sem hægt er að fá margvíslega aðstoð við að hætta að reykja, skrifa og lesa blogg-síður þeirra sem eru í sömu stöðu og persónulega ráðgjöf - ókeypis.
Radgjof_i_reykbindindi,_logo_og_simiViljirðu hætta að nota tóbak (sígarettur/munntóbak) þá geturðu m.a. fengið ókeypis persónulega aðstoð hjá Ráðgjöf í reykbindindi 800 6030 alla virka daga milli kl. 17 og 19.

Öll almenn heilsufarsaðstoð

upplýsingamiðstöð heilsugæslu höfuðborgarsvæðisinsÁ heilsugæslustöðvum um allt land er hægt að fá ráðgjöf og stuðning. Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er hægt að ræða við hjúkrunarfræðing í síma.





Laugavgi 116 - 105 Reykjavík - S:5 800 900

Þetta vefsvæði byggir á Eplica