Hvað þýðir?
18 ára ábyrgð
Foreldrar/forráðamenn bera ábyrgð á okkur alveg fram til 18 ára aldurs, með öllum þeim áhyggjum og skyldum sem því fylgja.
Á hverju sumri hefst umræða fjölmiðla um eftirlitslausa unglinga á bæjarhátíðum og tjaldstæðum víða um land. Þegar líður að Verslunarmannahelgi nær þessi umræða hámarki. Ábyrgð foreldra á unglingnum sínum gildir þó alltaf og fer ekki í sumar- eða helgarfrí. Unglingur sem fær leyfi til að fara með vinunum í útilegu eða á útihátíð getur gert sitt til að foreldrarnir þurfi ekki að vera með miklar áhyggjur - og auðvelt verði að fá leyfi til að fara aftur:
- Traust er mikilvægt. Ef þú hefur fengið leyfi til að fara í útilegu eða ferðalag með vinum/vinkonum, skaltu sýna að þú sért traustsins verð/ur.
Ef þú hefur ekki fengið leyfi geturðu óskað eftir útskýringu á því svo þú getir hugsanlega bætt úr málunum fyrir næsta sumar eða næsta ferðalag. - Foreldrar/forráðamenn eiga rétt á að hafa samband við foreldra þeirra sem þú ætlar með. Meðal annars til að fá upplýsingar um hvort hægt sé að ná í einhverja aðra ef eitthvað kemur upp á og hvort útbúnaður hópsins sé nógu góður.
- Það skiptir máli að einhver ábyrgur fullorðinn sé með í för. Skildu eftir símanúmer hjá þeim sem ætlar með þér/ykkur.
- Farðu yfir ferðaáætlunina með foreldrunum og hafðu samband ef hún breytist. Fáðu álit foreldranna (og/eða annara fullorðinna) á því hvort þú sért nógu vel útbúin(n).

- Öryggisnet. Fáðu símanúmer hjá ættingjum og vinum sem þú getur hringt í ef eitthvað kemur upp á og ekki næst í foreldrana.
- Haltu hópinn. Það er mikilvægt að þið haldið hópinn og passið hvert upp á annað, sérstaklega á hátíðum þar sem svæðið er stórt og fullt af fólki.
- Fáðu aldrei far hjá neinum sem er undir áhrifum áfengis.
- Ekki vera skotmark. Sá sem er undir áhrifum áfengis er í meiri hættu á að lenda í vandræðum en sá sem er edrú.
Flestir unglingar standa undir því trausti sem foreldrar þeirra hafa sýnt þeim með því að leyfa þeim að fara eftirlitslausum í ferðalag. En ýmislegt getur alltaf, og hefur oft, komið upp á þó það sé ekki unglingnum að kenna. Því skiptir miklu máli að foreldrar/forráðamenn viti hvar þið séuð og með hverjum, og bæði þið og þau geti haft samband ef þörf krefur.

