Hvað þýðir...?
Hreyfing / íþróttir - hugtök
Miðlungserfið hreyfing er hreyfing sem krefst þrisvar til sex sinnum meiri orkunotkunar en hvíld. Við miðlungserfiða hreyfingu verða hjartsláttur og öndun heldur hraðari en venjulega en hægt er að halda uppi samræðum. Miðlungserfið hreyfing getur t.d. verið rösk ganga, garðvinna, heimilisþrif og að hjóla, synda eða skokka rólega.
Erfið hreyfing er hreyfing sem krefst meira en sex sinnum meiri orkunotkunar en hvíld. Erfið hreyfing kallar fram svita og mæði þannig að erfitt er að halda uppi samræðum. Erfið hreyfing er t.a.m. rösk fjallganga, snjómokstur, hlaup og flestar íþróttir og önnur þjálfun sem stunduð er með árangur í huga.
Áfengi - hugtök
Áfengisdauði (Passing out): þegar viðkomandi missir meðvitund vegna neyslu áfengis. Gerist þegar þéttleiki etanóls (áfengis) í miðtaugakerfinu er slíkur að um eiginlega svæfingu verður að ræða.
Blackout/Óminni þegar viðkomandi man ekki hvað gerðist, einkum eftir mikla neyslu áfengis, án þess að missa meðvitund. Vegna ölvunar getur heilinn ekki myndað nýjar minningar.
Lotudrykkja (Binge drinking): þegar mikið magn áfengis er drukkið á skömmum tíma.
Ofurölvun er neysla áfengis sem nær því marki að ákveðin ölvunareinkenni sýni sig. Til dæmis: ráfandi göngulag og skert samhæfing hreyfingar, erfiðleikar með að tala, skert skynjun.
Timburmenn eru eftirköst eftir mikla drykkju eitt stakt skipti. Slík eftirköst eru vegna eituráhrifa áfengis og einkennast af höfuðverk, óreglulegur hjartsláttur, ógleði og ertingu frá meltingarvegi. Höfuðverkurinn er oftast vegna ofþornunar líkamans en áfengi hefurr vatnslosandi áhrif.
Tremmi (Delerium tremens) er hluti af fráhvörfum eftir mikla og langvarandi áfengisneyslu. Á íslensku er talað um “titurvillu” sem einkennist af rangskynjunum og oft krömpum.

